Í lok nóvember í fyrra var haldin keppnin BeefeaterMIXLDN hér á Íslandi þar sem tólf frábærir barþjónar voru valdir af Beefeater teyminu í London að taka þátt.
Þessi keppni hefur verið haldin í sex ár og fékk Ísland loks að taka þátt í fyrra.
Það var Jónmundur Þorsteinsson frá Apótek Restaurant sem sigraði mótið hér á Íslandi, en að launum fékk hann meðal annars þátttökurétt að keppa í aðal keppninni sem nú er haldin í London að auki á hann möguleika á að búa til sitt eigið gin.
Jónmundur einn af okkar bestu barþjónum á Íslandi er nú staddur í London og etur kappi við heimsklassa barþjóna frá 35 löndum.
Hér fyrir neðan er uppskriftin af drykknum hans Jónmundar sem hann sigraði með hér á Íslandi sem heitir The Tresures of Laugardalur:
45ml beefeater london dry 22ml rabarbara 30ml djúsaðar hundasúrur 22ml kerfilssíróp Dass af appelsínubitter Hristur og borinn fram á klaka í keramik kokteilglasi/blómapotti
Við færum ykkur fréttir af velgengni Jónmundar um leið og þær berast.
Myndir: skjáskot af snapchat aðgangi veitingageirans.
#BeefeaterMIXLDN Í lok nóvember í fyrra var haldin keppnin BeefeaterMIXLDN hér á Íslandi þar sem tólf frábærir barþjónar voru valdir af Beefeater teyminu í London að taka þátt.



















