Emilie’s á horni Hverfisgötu og Barónsstígs býður uppá líklegast besta úrval af enskum skonsum sem Reykjavík hefur uppá að bjóða. Hjá Emelie’s, sem er nb frönsk keðja, er hægt að fá allt að 6 tegundir af skonsum á hvejrum morgni sem eru bakaðar í litla ofninum þeirra. Þetta er fullkominn göngutúr fyrir mig eftir morgunsund í Sundhöllinni á leiðinni í vinnuna.
Hér er minn vinkill á skonsurnar.
Þú þarft:
500gr hveiti
3 egg
75gr sykur
30gr lyftiduft
75gr bráðið smjör
3dl rjómi
2 tsk vanilludropar
75gr súkkulaðidropar
2tsk kanill
Öllu nema einu eggi er blandað saman í hrærivél og hnoðað þar til deigið er orðið þétt og með fallega áferð.
Þá er deigið flatt út í ca þumalþykkt og skorið út í ferninga, tígla eða bara það sem hentar ykkar. Engar áhyggjur af þykktinni, það er svo mikið lyftiduft í deiginu að þetta á eftir að rísa vel. Svo eru skonsurnar penslaðar með hrærðu eggi og svo má strá jafnvel kanilsykri yfir. Bakað í 15 mín við 200°C.
Best með miklu smjöri og góðum osti…mmmm.
Enskar skonsur með súkkulaðibitum Emilie's á horni Hverfisgötu og Barónsstígs býður uppá líklegast besta úrval af enskum skonsum sem Reykjavík hefur uppá að bjóða.








