Taktu þátt í draugasögukeppni Borgarbókasafnsins og skrifaðu þína eigin draugasögu. Verðlaun eru í boði. Samkeppnin er opin öllum börnum og einu skilyrði sögunnar eru að hún fjalli um draug á bókasafni. Það er gott að hafa eftirfarandi í huga:
Er þetta gamalt eða nýtt bókasafn? Hefur það áhrif á draugaganginn?
Kemur draugurinn bara fram á nóttinni og skilur eftir sig verksummerki eða verður fólk vart við hann á daginn?
Hvernig vera/manneskja myndi ásækja bókasafn? Hvað vill draugurinn?
Hvað myndi draugur á bókasafni gera? Hrindir hann bókum úr hillunum eða les hann þær?
Draugasögur mega vera einfaldari en venjulegar sögur og þurfa ekki endilega að hafa upphaf, miðju og endi. Hræðilegustu draugasögurnar útskýra heldur ekki allt heldur skilja lesandann eftir í óvissu.
Aðaláherslan ætti að vera á sögusvið (hvar og hvenær sagan gerist) og andrúmsloft.
Venjulegar aðstæður, þar sem eitthvað smávegis er óeðlilegt, eru venjulega draugalegri en kastalar og kirkjugarðar. Ímyndaðu þér aðstæður sem þú þekkir, en breyttu svo einhverju til að gera þær að einhverju leyti óeðlilegar (á bókasafninu gætu t.d. gangarnir verið of langir eða þröngir, bækurnar of stórar, allt of mikið eða lítið af fólki, starfsfólkið of þögult o.s.frv).
Vertu óhrædd/ur við að nota það sem þú sjálf/ur óttast. Hugsaðu um eitthvað skipti þegar þú varst hrædd/ur. Af hverju varstu hrædd/ur? Hvernig leið þér? Hvernig brástu við? Sögur eru alltaf lang mest sannfærandi þegar höfundurinn byggir þær á eigin reynslu.
Krakkar sem eru alltaf á bókasafninu rekast allt í einu á bók uppi í hillu sem þau hafa aldrei áður séð þrátt fyrir að þekkja úrvalið vel. Hún er samt gömul og rykfallin og lítur út fyrir að hafa verið þarna lengi. Þegar þau opna hana þá….
Þú ert búin/n að sitja á bóksafninu djúpt sokkin/n í spennandi bók (kannski draugasögur) og þegar þú klárar tekurðu eftir því að það er búið að loka bókasafninu. Það er læst og þú ert ein/n inni. Eða hvað…?
Þú ert að ráfa um bókasafnið og sérð dyr úti í horni/nýjan hnapp í lyftunni sem á stendur „Lesstofa - ALGJÖR ÞÖGN!“ Þú ert forvitin/n og ákveður að opnda dyrnar/ýta á takkann…
Sögunum má skila í næsta útibú eða í tölvupósti til [email protected] merkt „Bókasafnsdraugurinn“. Skilafrestur er til fimmtudagsins 30. apríl.