Bjarni Benediktsson lýsti því ítrekað fyrir alþingiskosningar í fyrra að hann væri fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda skyldi áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Hann fullyrti tveimur dögum fyrir kosningar að staðið yrði við það loforð.
Mars 2013 (stöð 2)
Í Evrópusambandsmálinu þá munum við standa við það sem að við höfum ályktað um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla. Hún gæti farið fram á fyrri hluta þessa kjörtímabils, til dæmis í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar. En við munum standa við það að hlusta eftir því sem fólki í landinu vill.
23. mars 2013 (rúv)
Ég tel að það sé vel raunhæft að gera þetta á fyrri hluta kjörtímabilsins næsta. Jafnvel samhliða sveitarstjórnarkosningunum. Við verðum að sjá til, en Sjálfstæðisflokkurinn styður að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál.
24. apríl 2013 (fréttablaðið, þremur dögum fyrir kosningar)
Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að við eigum ekki að ganga í Evrópusambandið og greiddi atkvæði gegn umsókn, en við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það.
25. apríl 2013 (stöð 2, tveimur dögum fyrir kosningar)
Við viljum ekki ganga inn í Evrópusambandið, við viljum opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og ég tel rétt að stefna að henni á fyrri hluta kjörtímabilsins.

















