KÆRU LESENDUR.
Þakkir fyrir að vera hérna með okkur og njóta þess að vera í heimilisfræði/tölvum í Hlíðaskóla. Þetta er búið að vera rosa gaman.
MBK. Eyrún Björk Jakobsdóttir, Agnes Ýr Óskarsdóttir & Anna Guðbjörg Hannesdóttir.
art blog(derogatory)
tumblr dot com
macklin celebrini has autism
Today's Document
hello vonnie

@theartofmadeline
Color Me Curious
noise dept.
🪼
Monterey Bay Aquarium
Aqua Utopia|海の底で記憶を紡ぐ
NASA
Sade Olutola

pixel skylines
TMBGareOK. The Official They Might Be Giants tumblr
YOU ARE THE REASON

❣ Chile in a Photography ❣

PR's Tumblrdome
The Stonewall Inn
🩵 avery cochrane 🩵

seen from Malaysia

seen from Bangladesh
seen from Colombia
seen from United States

seen from Kenya

seen from Vietnam
seen from Venezuela
seen from Ireland

seen from United States
seen from Brazil

seen from Bangladesh
seen from United States
seen from India

seen from Vietnam
seen from United States
seen from United States
seen from United States
seen from Türkiye
seen from Colombia
seen from Netherlands
@matarhornid
KÆRU LESENDUR.
Þakkir fyrir að vera hérna með okkur og njóta þess að vera í heimilisfræði/tölvum í Hlíðaskóla. Þetta er búið að vera rosa gaman.
MBK. Eyrún Björk Jakobsdóttir, Agnes Ýr Óskarsdóttir & Anna Guðbjörg Hannesdóttir.
Matartímarit Matarhornsins
http://issuu.com/matarhornid/docs/1.tbl.docx
M Y N D I R Ú R P A R T Ý I N U
Partý í heimilisfræði
Mánudaginn síðastliðna héldum við partý í heimilsfræðistofunni.
Mikill kætingur var í öllum og skemmtileg stemning ríkti á meðal allra :-)
Hér fyrir neðan eru myndir af því sem var á boðstólum í partýinu:
litlar pítsur.
grænmeti og góð sósa.
beikonvafðar döðlur
frönsk súkkulaðikaka
rice krispies kökur
hér eru borðin:
Heimagert pasta
Að búa til heimagert pasta hljómar kannski eins og að það sé rosalega flókið en í rauninni er mjög auðvelt að búa til heimagert pasta. Við erum búin að prófa nokkrar uppskriftir og þessi er langbest að okkur finnst.
Best er að byrja að blanda saman hráefnunum í skál með sleif og þegar að þetta er orðið að nokkurs konar deigi er kominn tími til að skella þessu á borðið og hnoða deigið með höndunum.
Þegar að við erum búnar að hnoða deigið í fallega kúlu skellum við því aftur í skálina, hendi plastfilmu yfir og leyfi því að standa í sirka 30 mínútur áður en við notum það.
Við eigum pastavél sem við notum til að fletja út deigið en að sjálfsögðu er hægt að nota kökukefli en það þarf töluvert meiri hæfni við það.
Hráefni fyrir 3-4:
2 bollar hveiti (470 ml)
3 egg
1 tsk. salt
2 msk. ólífuolía
Aðferð:
Setjið hveitið og saltið í skál.
Búið til lítinn brunn í hveitið og setjið eggin ofan í.
Blandið öllu saman og bætið við ólífuolíunni.
Þegar deigið er farið að taka á sig mynd er best að taka það úr skálinni og hnoða það á borðplötu.
Ef að deigið er of blautt eða klístrað er best að bæta meiri hveiti við það. Deigið á að vera rakt en ekki klístrað. Það á ekki að festast við þig eða borðplötuna.
Leifið deiginu að "hvíla sig" í skál í 30 mínútur áður en það er notað.
Pítsa og Oreo ostakaka
LITLAR VEISLUPÍTSUR
eða ein stór fyrir tvo
Efni: 1 ½ dl volgt vatn
2 tsk þurrger
½ tsk salt
1-2 msk matarolía
1-2 dl heilhveiti
2-3 dl hveiti
Fylling ofan á pítsurnar
nokkrar msk. pítusósa
1 ½ -2 dl rifinn ostur
grænmeti t.d. tómatar, sveppir, laukur og paprika
pepperoni, skinka
Aðferð:
Mælið volgt vatn og setjið í skál.
Setjið þurrger, salt, matarolíu, heilhveiti og megnið af hveitinu í skálina og hrærið vel saman.
Stráið því sem eftir er af hveitinu yfir deigið og látið það lyftast á hlýjum stað ef tími er til.
Hrærið, og hnoðið deigið og fletjið það út með kökukefli.
Stingið pítsurnar út með glasi eða móti 7½ cm í þvermál og raðið þeim á plötu með pappír á. Eða fletjið út eina stóra pítsu.
Setjið pítsusósu á miðju hverrar pítsu og dreifið úr, setjið rifinn ost yfir og ofan á ostinn er hægt að setja fínt skorinn lauk, niðurskorna sveppi, saxaða papriku og fleiri tegundir af grænmeti ef vill.
Sett inní volgan ofn, 50°C heitan, hann stilltur á 200°C og bakað í um það bil 15-20 mínútur.
Ostakaka
Efni (fyrir 2):
3 Oriokex
2 msk brætt smjör
100 gr rjómaostur
1 dl rjómi
Ca 1 msk Nutella
Aðferð:
Myljið kexið og bætið smjörinu út í . Setjið í botninn á fallegum glösum. Hrærið rjómaostinn og bætið Nutella út í. Rjómanum er hrært saman við blönduna. Hellið yfir kexið. Skreytt með t.d. berjum, myntu.
Uppskrift úr Gestgjafanum
Agnes og Eyrún gæða sér á góðri kökunni! ;)
Hnetulausa hrákakan
1. Leggið döðlurnar í bleyti í smástund og maukið með töfrasprota.
2. Malið graskersfræin.
3. Blandið öllu saman.
4. Setjið í mót og inn í ísskáp.
Hér er útkoman okkar! Bætið við ferskum og góðum ávöxtum/berjum á kökuna. Borið fram með ís eða rjóma.
Verði ykkur að góðu ;)
- Kossar og knús, Matarfíklarnir
Hnetulausa hrákakan
Hráefni:
1 bolli döðlur
1/2 bolli Hampfræ
1/2 bolli Graskersfræ
1/2 bolli kakó
1 bolli kókosmjöl
1 msk kókosolía (þessu má sleppa)
1 msk hlynsýróp (þessu má einnig sleppa)
Krem:
5 msk hlynsýróp
5 msk kókosolía
5 msk kakó
örlítið salt og vanilla
Aðferð án matvinnsluvélar:
1. Leggið döðlurnar í bleyti í smástund og maukið með töfrasprota.
2. Malið graskersfræin.
3. Blandið öllu saman.
4. Setjið í mót og inn í ísskáp.
Þessi kaka er bæði holl oG GÓMSÆT! Við nutum þess mjög að borða hana og við mælum með vanilluís eða rjóma með ;)
8.5/10
- Kossar og knús, Matarfíklarnir
Hafraklattar
Efni:
500 gr smjör (lint)
200 gr sykur/hrásykur
400 gr púðursykur
4 tsk vanillusykur
4 egg
350 gr hveiti/spelt
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 tsk kanill
550 gr haframjöl
100 gr smátt skorið suðusúkkulaði (má auka, minnka eða sleppa)
1 bolli rúsínur (má auka, minnka, sleppa)
Aðferð:
Smjör, sykur og púðursykur þeytt þar til létt og ljóst. Eggjum bætt í einu og einu í senn ásamt vanillusykri. Þurrefnum bætt út í hveiti, matarsóda, salti og kanil, og í lokin er haframjöli rúsínum og súkkulaði bætt við.
Spaghetti Carbonara
Innihald: 400 g spaghetti • salt og svartur pipar úr kvörn 2 msk olía 1 stk laukur 8 stk beikonsneiðar 150 g sveppir 2 stk hvítlauksgeirar 75 g smjör 5 stk egg • ferskur rifinn parmesanostur ½ búnt steinselja
Aðferð: Sjóðið pastað í 12 mínútur í vatni með smá ólífuolíu.
Saxið svo laukinn fínt, skerið sveppina í fernt og fínsaxið hvítlaukinn. Skerið beikonsneiðarnar gróft og steikið allt saman í helmingnum af smjörinu á stórri pönnu.
Hellið pastanu á sigti og látið drjúpa vel af. Setjið restina af smjörinu á pönnuna ásamt pastanu og kryddið. Sláið eggjunum saman í skál og hellið út á pönnuna. Setjið pönnuna á hita og veltið saman með tveim sleifum þar til allt er orðið þykkt.
Stráið rifnum ferskum parmesan yfir ásamt saxaðri steinselju.
Verði ykkur að góðu, kossar og knús, Matarfíklarnir ;)
Litlar veislupítsur
Litlar veislupítsur (úr Gott og gagnlegt)
Hráefni:
1 ½ dl volgt vatn
2 tsk þurrger
½ tsk salt
1 msk matarolía
1–2 msk hveitiklíð
3–4 dl hveiti
2–3 msk maísmjöl sem notað er
Þegar deigið er flatt út fer fylling ofan á pítsurnar:
nokkrar msk pítsusósa
1 ½–2 dl rifinn ostur
Grænmeti, t.d. tómatar,sveppir, laukur og paprika.
Aðferð:
Kveikið á ofninum og stillið á 50 °C.
Mælið volgt vatn og setjið í skál
Setjið þurrger, salt, matarolíu, hveitiklíð og megnið af hveitinu í skálina og hrærið vel saman.
Stráið því sem eftir er af hveitinu yfir deigið og látið það lyftast á hlýjum stað ef tími er til.
Hrærið, sláið og hnoðið deigið og fletjið það út með kökukefli. Gott er að sáldra maísmjöli yfir deigið áður en það er flatt út. Maísmjöl klístrast minna en hveiti og deigið festist því síður við borð og hendur.
Stingið pítsurnar út með glasi eða móti 7 1/2 cm í þvermál og raðið þeim á plötu með pappír á.
Setjið pítsusósu á miðju hverrar pítsu og dreifið úr, setjið rifinn ost yfir og ofan á ostinn er hægt að setja fínt skorinn lauk, niðurskorna sveppi, saxaða papriku og fleiri tegundir af grænmeti ef vill.
Setjið inn í ofn í 5–8 mínútur, hækkið svo hitann í 200 °C og bakið í um það bil 12–15 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
- Kossar og knús, Matarfíklarnir ;)
Subway kökur
Efni:
115 g mjúkt smjör
1 dl sykur
1 dl púðursykur
1 egg
1/4 tsk hjartarsalt
1/2 tsk vanilludropar
1/4 tsk salt
2 1/4 dl hveiti
150 g súkkulaði, gróft brytjað
Aðferð:
Kveikið á ofninum og stillið á 180 blástur eða 200°C undir og yfirhita.
Brytjið súkkulaðið niður í frekar stóra bita.
Hrærið mjúkt (ekki brætt) smjör, sykur og púðursykur saman með rafmagnsþeytara eða í hrærivél.
Bætið egginu út í og hrærið áfram þangað til deigið hefur samlagast vel. Slökkvið á hrærivélinni.
Setjið hjartarsalt, vanilludropa, salt, hveiti og súkkulaði í skálina og blandið vel saman með sleif.
Ákveðið stærðina á kökunum. Það er hefð fyrir að hafa þær nokkuð stórar. Setjið deigið með matskeið á ofnplötur með pappír. Hafið gott bil á milli því kökurnar renna mikið út. Bakið kökurnar ljósbrúnar og kælið, áður en þær eru settar í umbúðir.
Ef þú ætlar að baka 2 plötur er gott að láta ofninn á blástur.
Við í Matarhorninu fórum og heimsóttum Íslenskt grænmeti og var það rosa gaman. Við lærðu mikið um framleiðslu grænmetis og osts! Einnig fengum við að smakka á yndislegu grænmeti ásamt æðislegum osta eftirrétti. Þessi ferð var mjög skemmtileg, áhugaverð og fræðandi :D Hér er linkur af youtube aðgangi Íslensks grænmetis: http://www.youtube.com/user/islensktis og hér er vefsíða þeirra: http://www.islenskt.is.
-Kossar og knús, Matarfíklarnir :~)
1. Kartöflurnar þvegnar með vatni , settar i pott með vatni og soðnar þangað til þær verða mjúkar.
2.Vatninu hellt af kartöflunum og þær afhýddar.
3. Settar aftur í pottinn og stappaðar
4. Hita mjólk og smjörið saman í potti og hellt smá samann i pottinn með kartöflunum.
5. Bragðbætt með salti, pipar og sykri, beikonbitum bætt út í kartöflumúsina og steinselja lögð ofan á músina og laukurinn í kringum kartöflumúsina.
Verði ykkur að góðu ;)
- Kossar og knús, Matarfíklarnir :~)
Brennandi ást
Efni:
Kartöflumús
600-700 g kartöflur
vatn til að sjóða þær í
1dl mjólk
3-4 msk smjör
salt og pipar
1-2 laukar
150g beikon
Aðferð:
Kartöflurnar þvegnar, settarí pott með vatni og soðnar þar til þær eru mjúkar.
Vatninu hellt af kasrtöflunum og þær afhýddar.
Settar aftur í pottinn og stappaðar.
Mjólk og smjör hitað saman í potti og hellt smá saman út í kartöflustöppuna, hrært í á meðan.
Bragðbætt með salti og pipar.
Beikonbitar og steinselja sett yfir kartöflunar og laukur í kring um réttinn.
Á meðan kartöflurnar sjóða er laukurinn hreinsaður, skorinn niður og steiktur glær.
Beikonið er steikt og skorið niður.
Uppsriftina fengum við hjá skólanum.
Kossar og knúsar, matarfíklarnir