Hraði og heimsóknir
Halla Kolbeinsdóttir @hallakol
Viðbragðstími vefja hefur áhrif á hegðun notenda. Netnotendur eru heldur óþolinmóður hópur og hægt að staðhæfa að seinagangur vefsvæðis eykur líkur á að fólk yfirgefi síðuna.
En, skoðum betur þessa staðhæfingu. Hversu margir notendur fara ef vefsíðan tekur t.d. 2 sekúndur að hlaðast? Hvað með í snjallsímanum? Ætli mynstrið breytist eftir því hverskonar tæki fólk notar? Hvernig hefur hraði vefsíðu áhrif á sölutölur vefverslanna?
Ég rakst á þessa skemmtilegu "infografik" hjá KISSmetrics þar sem þeir setja upp á myndrænan hátt ýmsar tölfræðilegar upplýsingar varðandi síðuhraða og hegðun notenda. Yfirskriftin er "hvernig síðuhraði hefur áhrif á pyngjuna" sem er góður titill því það er akkúrat kjarni málsins.
Kíktu á hvað KISSmetrics hafa að um málið að segja og líttu svo aftur við á blogginu okkar, næsta færsla frá mér mun fjalla um aðferðir til að bæta viðbragðstíma vefsins þíns.
Ég heiti Halla Kolbeinsdóttir og er viðskiptastjóri hjá Hugsmiðjunni. Þú finnur mig víðsvegar á netinu sem hallakol












