Skrifborð og súkkulaði(s)æta
Gísli Einarsson ætlar að hitta félaga í Kótilettufélagi Íslands í Landanum í kvöld, hvernig stendur á því að mér hefur ekki verið boðin innganga í þetta gómsæta félag? Nei ég skil það ekki heldur.
Eftir dásemdar sunnudagshádegi með bestu BB, LEA og BF og smá lærdóm tók ég mig til og gerði mitt besta til að lappa uppá forláta skrifborð sem mér áhlotnaðist þegar móðursystir mín var að tæma íbúðina hans Arreboe heitins.
Miðað við að það fannst undir gömlu dóti og drasli inni í bílskúr þá leit það furðu vel út, ég þurfti bara aðeins að plokka burtu nokkra gamla Mikka Mús límmiða, þrífa það vel og olíubera.
Til að ná límmiðunum af er best að bera vel af viðarolíu (ég notaði tekk olíu) á límmiðann og láta liggja í smá stund, þá er lítið mál að kroppa þá af.
Ég held að skrifborðið fái heiðurssess í nýja eldhúsinu og verði hlaðið matreiðslubókum, minnismiðum og þegar andinn kemur yfir mann, saumavélinni.
Titillinn á póstinum lofar súkkulaði, gjörðusvovel!
Eftir að hafa starað á þessa uppskrift tímunum saman undanfarna mánuði ætla ég loksins að skella í blondies. Ég held að ég setji 70% súkkulaði, suðusúkkulaði, hvítt súkkulaði, möndlur og pekanhnetur í deigið, er það nokkuð að ofgera hlutunum? Nei ég hélt ekki.
Vonandi belgir ástmaðurinn sig ekki of út af poppi og kók í bíó og hefur lyst á að smakka þegar hann kemur heim.
Blondínurnar voru unaðslegar, ég á enþá smá bita eftir sem ég er að spara og það lá við að það kæmi til slagsmála á heimilinu í gær þegar það barst út að ég ætti falinn mola einhverstaðar. Ég ákvað því að henda inn uppskriftinni á íslenskan máta svo allir geti nú dáið smá af smjöri, sykri og súkkulaði.
> þeytt saman þar til mjúkt og aðeins ljósara en til að byrja með
1 tsk. vanilludropar (það er aldrei verra að nota of mikið af vanilludropum)
Að lokum er bætt við eins miklu af súkkulaði, hnetum eða bara hverju sem er og hver vill.
Bakað við 180 gráður (allavegana í mínum ofni en hann er nú ekki neitt til að hrópa húrra yfir) í 20-25 mín. Ekki er verra þótt kakan sé smá blaut í miðjunni.
Ath. að þetta er frekar lítil uppskrift (mest handa 4 sem eftirréttur) og passaði vel í form sem er 21 cm í þvermál, ef það er mikið stærra verður kakan of þunn.