Sniðugar leiðir til stafrænna lita
Jón Frímannsson @jonfrijonfri
Oft vantar mann liti. Stundum eru þeir sjálfvaldir, t.d. ef til er hönnunarstaðall. Þeir stýrast líka stundum af hefðum, vana og markhóp, „Í lagi“ takki er t.a.m. sjaldnast rauður á Íslandi. Þær pælingar væru efni í fleiri en eina grein. Núna ætlum við bara að velja okkur liti.
Litavalmyndin í Photoshop
Svona lítur litavalmyndin í Photoshop út. Það er hvorki gefandi né skemmtilegt að nota hana til lengdar. Mér finnst ég að minnsta kosti alltaf velja sömu litina úr henni, þótt það séu trilljón litavalmöguleikar. Það eru til skemmtilegri leiðir til að blanda liti.
Adobe Kuler
Adobe Kuler hefur verið til lengi. Í gamla daga var það flash-tól, en í dag er það bæði til sem iPhone app og viðbót í Photoshop.
Kuler appið í Photoshop og fyrir iOS.
Photoshop viðbótin er fín, það eru óteljandi pallettur þar, það er hægt að leita, skoða þær vinsælust, nýjustu og svo framvegis.
Fjörið er hins vegar í appinu. Það leyfir þér að taka mynd og pikka út úr henni litina. Hversu oft sér maður ekki eitthvað og hugsar „djö"#$.. er þetta flott á litinn!“. Appið virðist samt á köflum „kæla“ litina svolítið.
Vanalega, þegar ég er kominn með smá safn í appið, sendi ég það úr símanum yfir í Photoshop, eða tek bara screenshot og opna það síðan í Photoshop, og leik mér með litina þar áfram.
Þetta trix hér frá Ericu Schoonmaker er mjög sniðugt til að ná heildarbrag á litina eftir að maður hefur stillt þá saman.
Eyedrop.me
Kuler yfir í Eyedrop.me
Eyedrop.me er annar litablandari fyrir síma. Inn í það má henda bæði myndum og vefslóðum. Það er hægt að senda úr því beint yfir í Photoshop, eða senda sjálfum sér Illustrator swatch eða hex gildin í email.
Ég nota það samt oftast eins og sést í hreyfimyndinni; tek skjáskot af Kuler appinu þegar ég er kominn með liti sem mér líkar, hendi þeirri mynd inn í Eyedrop og vel svo úr þá tóna sem ég fíla.
Útkomur
Hérna að neðan eru teikningar sem hafa áður birst hér á blogginu, en voru litaðar svona. Það sem ég renndi yfir hér að ofan er svona „stöðluðu ferlarnir“ mínir. Stundum tek ég ljósmynd og blörra hana og pikka liti þaðan, tek mynd af litapallettu tölvuskjánum og filtera, leik mér með „blending modes“ o.s.fv. - bara eitthvað annað en að sitja og velja litina beint úr litapallettunni í Photoshop með músinni.
Fyrir utan að vera skemmtilegra vinnuflæði - þá gefur þetta oft óvæntar útkomur; hluti sem maður bjóst ekki við. Á hverjum tíma á hönnuður eflaust sína uppáhalds liti og þetta hjálpar manni að brjótast út úr þeim hversdagstón. Góða skemmtun!
Texti við mynd
Texti við mynd









