Systir Teresa af barni Jesú vinnur nunnuheiti í Karmelklaustrinu i Hafnarfirði, desember 1989
„... Meðal viðstaddra var biskup kaþólska safnaðarins, Alfreð Jolson. Og það var hann sem byrjaði á því að spyrja Teresu þriggja spurninga, áður hún vann heit sitt; hvort það væri einlægur vilji hennar að gerast nunna, hvort hún væri reiðubúin að lifa í fátækt og hvort hún væri reiðubúin að lifa algjöru skírlífi. Þegar Teresa hafði svarað þessum spurningum játandi kraup hún og fór með eiðstafinn. ...“
—DV. 12. desember 1989, bls 7.
Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson









