14. Hvort á ég að fara í þessa áttina eða hina, eða á ég að hætta við allt saman?
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Ég tel þó að svör eða rétt svar sé til á reiðum höndum, ef viðkomandi setur sig í réttar stellingar. Oft er það svo að svarið hangir á trjánum í kringum mann.....eee..eða með öðrum orðum, svarið er að finna hjá manni sjálfum og umhverfinu sem maður er í. Það er nefnilega þannig að maður er samansettur úr mörgum hæfileikum og göllum sem saman gera hvern og einn að þeim sem hann er. Að auki hefur maður reynslu, þekkingu og svo auðvitað umhverfi sem er til staðar eða ekki. Það sem svo stendur eftir er það “drive” sem maður hefur sjálfur hvað einhvern hlut varðar. Það er það sem ræður svo förinni í hvaða átt maður á að halda. “Drive-ið” er það sem maður þarf að finna fyrst, og með því að hlusta á það sem maður hefur sjálfur fram að færa, í formi af hæfileikum og svo þekkingu og umhverfi, þá er það nokkuð ljóst hvað verða vill. Ég vil meina að maður hafi í raun val um tvo hluti. Að láta verða af því að gera draum sinn að veruleika og verða alvöru frumkvöðull (ef það er það sem mann langar til að verða) eða hætta við allt saman og láta drauminn um sjálfstæði lönd og leið. Að láta verða af því er áhættusamt, og getur gert manni ýmislegt slæmt, en á sama tíma getur verið ótrúlega gefandi, lærdómsríkt og getur gert manni ótrúlega mikið gott. Og við lestur þessarar setningar hér á undan tók ég eftir því að meira var gott en slæmt. Og það er grundvöllur ákvörðunar þinnar. En.......mikilvægt er að vanda til verka og ekki láta kæruleysi og þekkingarskort ráða för. Miklu fremur skal hefja verk á grunninum og hugsa áður en maður talar eða gerir. Námskeið eða ráðgjöf fyrir frumkvöðla hjá V6 er fyrir þá sem vilja fara í gang og gera framtíðina að sinni.
Ert þú einn af þeim?













