Takk Óli!
Skapalón er stolt af því að vera þátttakandi í verkefninu "Takk Óli" sem fór í loftið í gær. Ekkert lát er á kveðjunum til Óla og á rúmum sólahring hafa borist yfir 5.500 skemmtilegar kveðjur.
Það eru ekki margir Íslendingar sem hafa náð jafn merkum áföngum í íþróttum og Ólafur Stefánsson auk þess að hafa með einstökum karakter leitt Íslenska landsliðið í handbolta til afreka undanfarin ár sem ættu ekki að hafa farið framhjá neinum.
Sendum honum kveðju á www.takkoli.is, mætum á völlinn þann 16. júní og horfum á Strákana okkar taka Rúmena í nösina!














