18. Hvaða atriði skipta máli við stofnun fyrirtækis?
Oft er það svo að þegar fólk stofnar fyrirtæki, þá er það eitthvað sem er stofnað án þess að það sé hugsað nógu mikið ofan í kjölinn hvað það er sem skiptir máli. Það eina sem fólk lítur á sem aðalatriði, og oftast nær setur aðalfókus á, það er að peningar komi inn í kassann og að kassinn leki ekki. Þetta er auðvitað mjög skiljanleg og eðlileg hugsun og auðvitað eitt af lykilatriðunum við að geta látið fyrirtæki reka sig og til að geta haft af því atvinnu og geta verið sjálfstæður. En margt annað hefur áhrif sem oft fær minni fókus og sumir jafnvel gleyma algjörlega, er jafnvel alveg sama, svo lengi sem fólk getur lifað af reiknisdæminu.
Það er nú svo að flestir hafa fleiri atriði í huga og tengist það oft þeirri hugsun sem lá að baki því að stofna fyrirtækið upphaflega. Stofnandi fyrirtækisins (ég tala ekki um fólk sem kaupir annað fyrirtæki, það hefur aðrar forsendur en stofnandi og teljast ekki til frumkvöðla nema það uppfylli ákveðin skilyrði í minni skilgreiningu á frumkvöðli), semsagt, já stofnandi ákveður að stofna fyrirtæki vegna þess að hann telur að margt geti betur farið hjá samkeppnisaðilum eða að hann telji að hann hafi yfir að ráða upplýsingum, hæfileikum eða getu umfram aðra á markaðnum til að geta gert hlutina öðruvísi eða betur.
Þessir hlutir, sem stofnandi telur sig geta gert betur, snúa oft að því að varan er betri, þjónustan eða verðið. Það sem hinsvegar oft fær minni fókus er t.d starfsfólkið í fyrirtækinu, launin, viðhaldskostnaður á vörunni, nýsköpunin í tengslum við þá vöru eða þjónustu sem boðið er upp á, sjálfbærni fyrirtækisins og langtímamarkmið fyrirtækisins í að hafa áhrif á samfélagið á jákvæðan hátt. Mig langar til taka nokkur dæmi fyrir, en þetta er á engan veg tæming á þessum lista, og útlista nánar hvað ég tel að skipti máli í þessum upptöldu atriðum. Þetta er einnig eitthvað sem vert er að hafa í huga við stofnun fyrirtækis og tel ég jafnvel þessa hluti geta jafn mikilvæga eða jafnvel meira mikilvæga en hugsunin um arðinn, svona þegar öllu er velt upp.
Starfsfólkið í fyrirtækinu er að mínu mati lykillinn að þeirri velgengni sem fyrirtækið getur átt. Annaðhvort er stofnandinn/stofnendur eini/einu starfsmennirnir eða að ráðið er fólk til að sjá um ýmsar stöður í fyrirtækinu. Í hvoru tilvikinu fyrir sig er það auðvitað mikilvægt að starfsmaður hafi allar nauðsynlegar upplýsingar um fyrirtækið og þekki ástæður þess að fyrirtækið var stofnað. Góður starfsmaður getur bæði fært fyrirtækinu viðskipti í gegnum tengsl eða hæfileika en einnig geta sinnt sínu starfi án þess að fylgjast þurfi með honum. Besta ráðið til að geta treyst því að það gangi upp, er einfaldlega að gera starfsmanninn að hluthafa í fyrirtækinu eða að tengja laun við árangur. Starfsmaður getur komið með mikilvægar hugmyndir til betrumbætingar en einnig bent á galla í rekstri sem stofnandi sá ekki sjálfur. Starfsmaður hefur aðra sýn á verkefnið vegna stöðu sinnar og hefur þarafleiðandi mikilvægt viðhorf sem vert er að gefa gaum. Starfsmaðurinn er mun frekar í tengslum við viðskiptavini fyrirtækisins og þarafleiðandi veit hann hluti sem geta verið verðmætar upplýsingar fyrir fyrirtækið. Mikilvægt er því að gefa því gaum hvernig upplýsingar komast til skila milli starfsfólks.
Laun er, eins og ég gat um í fyrra dæmi, mikilvæg leið til að gera starfsmann sjálfstæðan og ábyrgan í starfi. Laun er að mínu mati gott stjórntæki sem vert er að stýra vel og hafa í föstum skorðum strax frá upphafi. Ef stofnandi mótar sér ekki ákveðna launastefnu sem miðast við reksturinn og sem gerir stofnanda kleift að nota laun sem stýritæki, getur verið erfitt fyrir hann að ná tökum á rekstrinum.
Viðhaldskostnaður vöru getur tengst beint því hversu farsælt fyrirtækið er til langframa. Hár viðhaldskostnaður getur eyðilagt gott orðspor á nokkrum dögum. Því er mikilvægt að tekin sé afstaða til slíkra hluta strax í upphafi og mótuð stefna í tengslum við það. Stundum er í lagi að segja að viðhaldskostnaður sé ásættanlegur því verð vörunnar er undir viðmiðunarmörkum, en það eru líka önnur atriði sem koma til, eins og t.d. ánægja og fyrirhöfn viðskiptavina o.fl.
Nýsköpun hefur beint með það að gera hvaða viðhorf viðskiptavinir hafa til fyrirtækisins. Ef fyrirtækið er nýskapandi eru líkur til að viðskiptavinir eru tilbúnir til að greiða meira fyrir vöruna, eru þolinmóðari og skilningsríkari gagnvart nýjum vörum fyrirtækisins og meira tilbúnir til að fyrirgefa mistök, ef verða. Nýsköpun hefur allt með það að gera hvort fyrirtækið verði á markaði eftir 10 ár eða ekki.
Sjálfbærni hefur með tvo hluti að gera. Í fyrsta lagi er það rekstur fyrirtækisins og á hvern hátt rekstur getur átt sér sitt eigið líf án þess að fyrir því sé haft. Þá er átt við að upphaflega orkan sem sett er í fyrirtækið skili sér til baka án þess að fyrir því sé haft að auki. Til að taka dæmi af þessu er t.d. þegar fyrirtæki setur vöru á markað að þá sé varan sjálf nægjanlega góð og mikil auglýsing að ekki þarf að setja í mikinn extra auglýsingakostnað til að ná fram sölu. Auðvitað þarf alltaf að kynna allt sem kemur nýtt, en lágmörkun kynnningarstarfsemi hlýtur að vera af hinu góða út frá fjárhagslegum sjónarmiðum. Hinn þátturinn í sjálfbærni hefur með vöruna eða þjónustuna að gera. Sjálfbærni er þegar varan eða þjónustan er númer eitt endurvinnanleg, númer tvö búin til úr orku þeirri sem jörðin gefur af sér en ekki orku sem menn hafa þurft að hafa mikið fyrir að framleiða, í þriðja lagi, geta vörunnar er hámörkuð, fjögur: varan/þjónustan er örugg fyrir mannkyn og jörðina og í fimmta lagi, ekki var notast við þrældóm til að framleiða vöruna.
Áhrif fyrirtækisins á samfélagið eru auðvitað mikilvæg því það skilar sér í góðu viðhorfi almennings til félagsins, trausti og trú á heilindi fyrirtækisins og auðvitað þeirri hugsun að sá auður sem fyrirtækið skapi, renni ekki einvörðungu í vasa eigenda, heldur fái þeir sem minna mega sín í þjóðfélaginu að njóta þess með.
Hér er ég með aðeins litla upptalningu á því sem skiptir máli, en þú sérð líka lesandi góður, hversu mikilvægt það er að hugsa fyrst áður en haldið er af stað. Námskeið eða ráðgjöf getur verið allra gjalda verð og getur þú lesandi góður sparað þér ómældar stundir og aukið við getu þína til að hámarka tækifærið sem þú ert með í hendi þér með því að losna við að gera mistök sem hægt er að forðast. Hafðu samband við V6 Sprotahús og leitaðu upplýsinga um hvað það er sem við getum gert fyrir þig.














