Á maður að bretta upp á augnhárin áður en maður setur maskarann á? Og afhverju?
Sæl, það gerir oft mikið fyrir augu sem vísa aðeins niður á við eða fyrir eldri augu að "opna" þau með því að bretta augnhárin. Einnig ef augnhárin þín standa beint fram eða hafa ekki náttúrulega sveigju er sniðugt að bretta þau, þá opnast augun meira og virka stærri. Ef þú brettir eftir að þú setur maskarann á er hætta á að þú klípir augnhárin hreinlega af - svo ég mæli ekki með því. Vona að þetta hafi svarað spurningu þinni, endilega haltu áfram að fylgjast með á nýju síðunni, bjutiboxid.blogspot.com :)
xoxo











