varir
seen from Bolivia
seen from United States

seen from Malaysia
seen from United States

seen from Ireland
seen from United Kingdom

seen from Netherlands

seen from United States
seen from Maldives
seen from Russia
seen from Spain
seen from United States
seen from Germany

seen from Australia
seen from China

seen from United Kingdom
seen from Saudi Arabia
seen from Kenya

seen from United Kingdom
seen from Lebanon
varir
Nýi MAC varaliturinn minn
Jæja hér kemur, eins og ég talaði um í síðustu færslu, mynd(ir reyndar) af nýja MAC varalitnum mínum. Hann heitir Creme de la Femme og er með Frost áferð.
Svona er liturinn með flassi.
Hér er hann ekki með flassi.
Það sést greinilega að það eru glimmerörður í honum en mér finnst þær alls ekki áberandi þegar liturinn er kominn á.
Kominn á:
Finnst hann rosa flottur og hann gefur vörunum greinilega raka því ég verð ekki með "skorpnar" varir eftir hann. Ég notaði NN Cosmetics varablýant sem heitir Natural áður en ég setti litinn á, til að ýta varalínunni aaaaaðeins út (munið bara að ofgera því ekki, við vitum allar að Ásdís Rán fékk sér sílíkon eða kollagen eða hvað sem það var í varirnar, hún málar ekki bara alltaf aðeins út fyrir!)
Varablýantur gerir það að verkum að við getum leikið okkur meira með lögun varanna og þær verða meira "defined" - úff ég finn ekki rétta orðið á íslensku! Svo er gott að venja sig á að setja aðeins af varablýantnum inná varirnar, þá helst varaliturinn betur á og fer síður af í flekkjum.
xoxo
munið að like-a Bjútíboxið á Facebook!
Snyrtivöruþráhyggja
Ég kíkti á Bobbi Brown kynninguna í Snyrtistofunni Lind á fimmtudaginn. Það var sérstaklega verið að kynna hyljarann nýja sem ég talaði um í færslunni fyrir hér fyrir neðan, en það var líka 20% afsláttur af öllum BB vörum. Ég stóðst auðvitað ekki mátið.....
Keypti mér þennan fallega varalit, það fyndna er að ég var búin að prófa annan sem var mjööög flottur - svolítið mikill litur fyrir manneskju eins og mig en ég ákvað að láta slag standa og vera villt! En svo kom ég út í bíl og leit á mig í baksýnisspeglinum og ákvað að ég vildi frekar kaupa þennan og nota hann þó allavega, heldur en að eiga hinn og þora aldrei að vera með hann! Liturinn heitir Bikini Pink :)
Svo keypti ég bursta sem heitir Touch Up og er tilvalinn til að hafa með í veskinu til að, eins og heitið gefur til kynna, laga meiköppið yfir daginn. Bæta við hyljara eða meiki, laga augnskugga og allt þar á milli.
Fyrir utan þennan 20% afslátt fékk ég svo gefins með prufu af Illuminating Powder, augnkremi sem virkar líka sem primer eða grunnur fyrir hyljara undir augun og Extreme Party maskara sem mig hefur lengi langað að prófa! Ég notaði maskarann um helgina og hann er mjög fínn - ekkert extreme reyndar finnst mér en ég ætla samt að gefa honum smá séns, sjá hvernig hann verður ef ég set nokkrar umferðir.
xoxo
p.s. Ég keypti alveg óvart varalit líka í MAC um helgina... geggjaðan lit, mynd væntanleg!
Nokkur góð ráð!
Tók þetta af gömlu bloggsíðunni minni - vona að þetta hjálpi einhverjum!
- Þrífið gamla maskaragreiðu og notið hana til að halda augabrúnum á sínum stað. Ef þær eru mjög óhlýðnar getið þið spreyjað hárspreyi í greiðuna áður en þið greiðið yfir og brúnirnar verða pikkfastar! - Ef þið klínið maskara á augnlok eða kinnar, ekki reyna að þrífa hann strax af. Þá klínist hann bara út um allt. Klárið frekar förðunina, takið svo þurran eyrnapinna og strjúkið af. Þá hálfbrotnar þornaði maskarinn í burtu. - Þegar þið setjið fallegan varalit á ykkur er gott að hafa hyljara við höndina því ef maður klínir út fyrir varirnar er oft erfitt að ná litnum alveg í burtu. Svo ekki nudda þangað til húðin verður rauð, dúmpið frekar létt með hyljarabursta. (Best er að hafa varablýant þegar þið notið varalit því það kemur í veg fyrir að varaliturinn "blæði" út fyrir. Getið séð í færslunni Varir varir varir að ég notaði ekki varablýant og það koma smáar línur út frá vörunum - sem hefði ekki gerst hefði ég haft varablýant!) - Eyeliner er flottastur ef hann er alveg upp við augnhárin. Til að láta augnhárin virka þéttari, litið á milli þeirra með augnblýanti. Síðan er hægt að gera fína eða þykka línu, allt eftir tilefni og vilja. - Munið að nota hyljara í kringum nefið, það svæði gleymist oft og verður rautt í "hita leiksins":) - Ekki gera svarta línu alveg í kringum augun ef þið eruð með lítil augu. Gerið heila línu uppi en látið hana aðeins ná inn að miðju við neðri augnhárin. Flottast er að láta hana "fade-a" út inn að miðju.
Munið svo að ekkert er bannað og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt!
xoxo
Varir varir
Hér kemur, eins og ég lofaði, mynd af Politely Pink MAC varalitnum! Ég er búin að nota hann á næstum hverjum degi síðan ég fékk mér hann, finnst hann sko bara betri og betri! Svo mjúk áferð (Lustre finish, það eru nokkur mismunandi "finish" á varalitunum hjá þeim) og hann nærir greinilega varirnar því þær verða aldrei þurrar eða "skorpnar" undan honum.
Svo sýndi ég ykkur Victoria's Secret Lip Balm sem ég keypti fyrir nokkrum vikum og talaði um hvað það væri örugglega flott að nota hann yfir minna glossy varalit. Prófaði hann því yfir þennan:
Þið sjáið hvað það munar miklu að hafa svona glært gloss yfir, varirnar virka fyllri og kyssilegri ;)
Svo langaði mig að sýna ykkur einn af mínum uppáhaldsvaralitum; Surprise Rouge Allure frá Chanel. Því miður fékk ég hann á útsölu því hann var að hætta - svo ég tími honum ekkert alltaf! En mér finnst hann mjög flottur og það er ekki að spyrja að gæðunum, Chanel stendur sannarlega fyrir sínu.
Svo fyrst ég var að þessu ákvað ég að prófa þennan líka með glossinu:
Gaman að prófa svona, ég held að ég eigi enga sérstaklega matta varaliti en það er samt greinilegur munur á þessum með og án glossins. Sjáið hvað smá "touch" getur gert mikið :)
xoxo