Hvaðan kem ég, hvert er ég að fara, hvað er ég?
Að skrifa markmið, eltast við markmið, ná markmiði, ekki ná markmiði, breyta markmiðum, hætta við markmið... allt er leyfilegt.
Meistaramánuður fór öfugt í mig.
Ég vaknaði á mánudagsmorguninn uppfull af trú á sjálfa mig. Á þriðjudaginn vaknaði ég með aðeins minni trú á sjálfa mig. Á miðvikudaginn ætlaði ég að hætta í skólanum. Á miðvikudagskvöldið sé ég viðtal við Stefán Boga um ADD í Kastljósinu, á fimmtudagsmorgun var ég búin að breyta markmiðum mínum og hætt við að hætta í skólanum, í morgun ákvað ég að eiga notalegan dag með frumburðinum, í fyrramálið fer ég í ræktina, á sunnudagsmorgun fer ég í ræktina og svo framvegis.
Ég gleymi stundum hvað ég er búin að áorka. Í dag eru rúmlega fjögur ár síðan ég breytti um lífsstíl. Það gerðist ekki á einni nóttu. Ég er komin langt á veg en ég verð að muna að allt það sem mig langar að breyta í eigin fari og lífi gerist ekki á einni nóttu, einni viku, einum mánuði eða á einu ári.
Það sem hefur breyst á þessum fjórum árum er ansi margt.
Ég kláraði frumgreinanám og er byrjuð í háskóla
Fyrir fjórum árum átti ég eiginmann og ársgamalt barn. Í dag á ég engan mann, fimm ára og eins árs barn.
Í dag á ég heima í borg en ekki bæ, íbúð en ekki einbýlisshúsi.
Ég borða hollt nánast alla daga og er meðvituð um að ég ber ábyrgð á eigin heilbrigði
Ég gæti talið upp aðra hluti en þetta eru þær breytingar sem hafa haft mest áhrif á mig. Það tók mig fjögur ár að missa þessi kíló, þrjú ár að fara í háskóla eftir frumgreinanámið, þrjú ár að koma mér í ræktina eftir of langt hlé og öll þessi fjögur ár hef ég markvisst verið að bæta mataræðið og læra meira og meira um næringu.
Ég má ekki gleyma því heldur að fyrir 9 og 1/2 ári síðan tók ég ákvörðun um að hætta að drekka. Það var stærsta ákvörðun sem ég hef tekið. Hún var auðveld á þeim tíma, en daglega þarf ég að minna mig á að ég ætla að standa við þessa ákvörðun það sem eftir er.
Ég þurfti semsagt að rekast á nokkra veggi, detta og standa upp aftur til að geta hafið þennan mánuð. Ég er búin að panta tíma hjá Ágústu Gunnars í greiningu á ADD. Tími til kominn að kyngja stoltinu. Of mikið í húfi.
Eitt get ég þó hakað við, lærdómurinn er kominn á full swing.