Þetta var svo gott! Nautakjöt, tómatsalsa, sætar og brokkolí. Hreinn og góður matur 👌#meistaram #massatröllnönnu

seen from United States

seen from United States

seen from United States
seen from United States

seen from Canada

seen from United States

seen from United States
seen from Canada
seen from Germany
seen from Russia

seen from Russia
seen from United States
seen from United States
seen from China

seen from Jamaica
seen from United States

seen from United Kingdom
seen from United States

seen from Maldives
seen from Japan
Þetta var svo gott! Nautakjöt, tómatsalsa, sætar og brokkolí. Hreinn og góður matur 👌#meistaram #massatröllnönnu
Mín markmið í Meistaramánuði! Hver eru þín? #massatröllnönnu #meistaram
Klúðraði þessu
Þvílík vonbrigði fyrir humar.
Það gleður líklega marga sem hafa verið að gagnrýna neysluviðmið fjármálaráðuneytisins að okkur tókst ekki að halda matarinnkaupum undir 100.000 í seinasta mánuði.
Við vorum þó 20% undir ársmeðaltalinu sem er ágætt. Tuttugu og fimm þúsund ISK sem má setja í eitthvað annað.
Markmiðið var að draga úr útgjöldum án þess að lepja dauðann úr skel. Við borðuðum vel og það var merkilega lítið kvartað við matarborðið.
Við hefðum líka náð þessu með því að sleppa sushi matarboði með vinum þar sem grænmeti og túnfiskur úr Hagkaupum fór langt með að sprengja skalann. Það er bara visst langt sem maður er tilbúinn að ganga.
Fyrir þá sem sáu ofsjónum yfir öndinni úr frystinum, þá var alltaf planið að borða meira úr skápunum. Við eigum líka læri og kjúkling í frysti núna sem mætti draga frá umframkeyrslunni ef við dettum í baunateljarann.
Það hefur allt verið á öðrum endanum í vinnunni upp á síðkastið svo daglegar uppfærslur urðu undan að láta.
Ég verð þó að deila með ykkur þessum nautahölum sem eru líklega vanmetnasta hráefni á landinu.
Þeir sem hafa verið í sveit vita að halinn stoppar sjaldan. Þetta er vöðvi sem er í stanslausri notkun frá burði til slátrunar.
Ég kynntist þessum rétt á ferðalagi í Zimbabwe. Þá sátu mennirnir kringum pott á hlóðum og hrærðu í vænum hölum allan daginn.
Vandamálið við íslensku halana er að það er nánast ekkert kjöt á þeim. Íslenska mjólkurbeljan er svo horuð að hún hefur ekkert í holdanautahalana.
Halana fann ég í krónunni á 500 kr kílóið og keypti þrjú (Fást líka oft í Hagkaup). Henti mögrustu bitunum og brúnaði rest í stórum potti (að brenna kjötið aðeins að utan gefur gott bragð í kássur).
Því næst svitaði ég lauk, sellerí og tómata í olíu og kryddaði með karrí, engifer og kóreander. Þegar það er allt orðið vel maukað fara halarnir aftur út í, tvær dollur af niðursoðnum tómötum og einhverskonar soð.
Þetta fékk að malla frá hádegi til 7 og þá saltaði ég, pipraði eftir smekk og fiskaði helstu bein upp úr. Þetta var svo borið fram með couscous.
Kássan er betri daginn eftir og heildar kostnaður var undir 2.000 kr fyrir okkur fjögur í tvær máltíðir.
Meistarahittingur
Hitti Garðar, vin minn úr tölvunarfræði, sem ég hef ekki séð alltof lengi. Fengum okkur hádegistilboð á Rakang og fórum aðeins yfir málin.
Staðan
Það sem hefur gengið vel:
Fylgjast með næringunni á myfitnesspal. Var fyrstu dagana að borða of lítið prótein en er búinn að negla þetta nokkuð vel niður. Búinn að skrá 11 daga í röð og alltaf verið réttu megin við strikið.
Vantar uppá:
Ekki enn búinn að hitta neinn í hádegismat en það stendur til bóta morgun
Fór ekki í fjallgöngu síðustu helgi eins og ég hafði planað. Skulda tvær göngur næstu helgi (eða Esja beint eftir vinnu á virkum degi)
Að skíta uppá bak með:
Ekki byrjaður að lesa bók og ekki einu sinni búinn að velja hana. Í alvöru Gunnar. Hvað ertu að hugsa?
Meistaramánuður 2014 - Markmið
Ég tók þátt í Meistaramánuði 2012 og 2013. Það er mikil stemning fyrir þessum mánuði í vinnunni (sérstaklega þar sem einn af þeim sem eru bakvið Meistaramánuð vinnur þar).
Það sem ég ætla að stefna að núna í október 2014:
Líkamsrækt a.m.k. 3x í viku
Hugleiða a.m.k. 3x í viku
Koma út a.m.k. einni bloggfærslu á Loro (hugsanlega með Birnu)
Ég mæti yfirleitt í vinnuna fyrir kl. 9, þannig að ég þarf ekki að setja mér það sem markmið í ár eins og hin árin :)
Ég nota tannþráð eiginlega daglega, þannig að ég þarf ekki að setja mér það sem markmið í ár eins og hin árin :)
Síðastu tvö ár hef ég verið að halda fyrirlestra í október. Núna verð ég með Google Analytics námskeið hjá Endurmenntun HÍ. Þar sem undirbúningur fyrir það tekur nokkurn tíma þá hefur það smá áhrif á að ég ætla ekki að vera með fleiri markmið í ár. Það er líka gott að hafa þetta einfalt og hafa ekki of háleit markmið - lærði það fyrst þegar ég tók þátt ;)
Dagur 2/31
Dagur 2. Ég byrjaði samt á því að taka út sykur og hveiti á mánudaginn svo fjórða deginum í því er lokið. Ég var með saumaklúbb í gær og það var áskorun að sneiða framhjá gúmmilaðinu en ég var búin að ákveða að leyfa mér smá úr snakkskálinni og borðaði svo bara smá ost og vínber. Það má. Markmiðið er ekkert meinlæta líf en mataræðið er búið að vera grjóthart þess fyrir utan og ég er búin að vera að mæta í ræktina að venju.
Tók mælingar í morgun. Það verður gaman að sjá tölur í lok mánaðarins.
Það sem ég fíla við meistaramánuð er að það kveikir í mér lönguninni til að gera betur í lífinu. Ekkert bara í október, heldur almennt. Ég er yfirleitt markmiðaþenkjandi en síðustu tvö ár hefur lífið bara verið svolítið flókið og ég hef ekki getað sett ákveðinn fókuspunkt á mikið annað en mataræðið, skólann og ræktina. Þetta er samt allt í rétta átt núna og ég er farin að spá í öðrum hlutum sem ég vil fara að sjá breytast og þá kemur markmiðasetningin sterk inní.
Meistaramánuður 2014 - markmið
Í ár ætla ég bara að setja mér fjögur markmið sem ég ætla að leggja áherslu á en svo er ég með nokkur önnur markmið sem ég held fyrir mig en eru ekki síður mikilvæg.
1. Leggja tölvu og síma frá mér kl 21:00 alla virka daga.
Að gefa augunum góða pásu frá skjám fyrir svefninn gerir svefninn betri og þú sofnar fyrr. Þetta ætti líka að hjálpa mér að lesa meira sem hefur verið markmið síðustu þrjá Meistaramánuði.
2. Hreyfa mig 5 sinnum í viku.
Langtímamarkmiðið er að taka hálfan Iron Man í Meistaramánuði á næsta ári. Undirbúningurinn hefst núna. Leiðin að því er algjörlega óskrifað blað en ég ætla að reyna hjóla eins mikið og veður leyfir í mánuðinum en æfa CrossFit og synda þess á milli. Ég ætla ekki að setja mér nein ákveðin markmið um kílómetra, mínútur eða kíló en ég ætla fyrst og fremst að njóta þess að hreyfa mig.
3. Drekka meira te
Í stað þess að hætta eða takmarka kaffineyslu ætla ég að hafa það að markmiði að drekka meira te í mánuðinum.
4. Fókus í mataræðinu
Paleo + hreinar mjólkurvörur og hvít hrísgrjón. Ekkert áfengi þennan mánuðinn.
Að lokum þá ætla ég að gera mitt allra besta við að vera jákvæður, hress og umburðarlyndur alla daga og takast á við verkefni mánaðarins af krafti.
Styrkur og sæmd!