Frá Peak district, birmingham, bathog cardiff.
Ég held að ég hafi skilið síðast við ykkur í kringum peak district. Þar var yndislegt að labba um, rólegt, fallegt og hefði örugglega verið æðislegt í túristatímabili. Þarna iðar örugglega allt á sumrin. Ég kom stutt við í Birmingham, kom um kvöldið með lest, fann hostelið og einhvern mat og svo var pantaður lestarmiði af stað næsta morgun. Lestinni minni seinkaði reyndar um 1 klst en komst að lokum frá Birmingham og til Bath Spa. Þar var rigning svo ekki mjög spennandi að labba um þannig að ég fjárfesti í miða í sightseeing túr. Rosa cool saga og frekar fallegt en var samt ekkert blown away. Hostelið var ágætt og þegar ég var búin með hinn sightseeing túrinn þá lét ég mig hverfa til Cardiff. Var eiginlega búin að sjá nóg af Englandi og þurfti smá pásu, svo þegar ég var búin að borða yndislegar kóngarækjur þá fór ég á bókasafnið að lesa. Hvað les maður þegar maður heitir Gíslína Skúladóttir og er í Bretlandi? Held það sé nokkuð ljóst; Harry Potter. Eina hp bókin sem var inni var bók 6 og ég las um 251 bls af þessum 607. Yndislegur dagur og lauk því með meira af góðum mat og svo sturtu. Föstudagurinn fór allur í ferðalög, lest, ferju og svo rútu og komst loks til Waterford um kl 9 um kvöldið. Rosa fínt hostel, flott andrúmsloft og gott fólk þannig að ég ákvað að vera hér 3 nætur og legg svo af stað í smá road trip um Írland með rútum. Cork, Tralee, Limerick, Galway og enda líklegast í Dublin á miðvikudagskvöldið.















