Frá Edinborg til Newcastle, Durham og York
Ég fór frá Edinborg um kl 11 á föstudaginn. Fyrsta skipti ein í lest og það var yndislegt. Skoskt náttúra er æðisleg og reglulega hugsaði ég "hvernig er allt svona grænt í janúar?" Kom til Newcastle og labbaði um um með bakpokann minn í næstum 2 klst og þar sem það var í fyrsta skipti þá kkm ég inn á hostelið kl 3 algjörlega uppgefin. Slakaði á til að verða 5 en þá reif ég upp hlýrri fatnaðinn minn og stökk út til að skoða Newcastle. Ákvað að labba niður að ánni sem var það sem mér fannst flottast við Newcastle séð úr lestinni. Það var rétt og ekkert verra í rökkrinu. Ég labbaði yfirgöngubrúnna þar sem er stórkostleg og heitir Gateshead Millenium Bridge. Hef sjaldan verið eins lofthrædd. Hún er alveg traust það er ekki það en hún er svo skrýtin í laginu að manni líður næstum eins og maður sé að labba í lausu lofti. Fór svo upp á hostel aftur og fékk mér lasagne og talaði við nokkrar stelpur frá Dublin. Kvöldið var ekki eins gott, hafði bókað 8 rúma kvennasvefnsal þar sem það var það sem hostelið bauð upp á. Einhvern veginn náði það að klúðrast og ég var sett í herbergi með 4-5 karlmönnum. Var alveg sama, þannig var það í Edinborg en þeir voru ekki mjög tillitssamir. Eftir að hafa vaknað stuttu eftir að ég sofnaði við að kveikt var á ljósunum í langan tíma þá kom inn mjög drukkin maður og fór í kojuna fyrir ofan mig, sofnaði á 0.1 og hraut eins og ég veit ekki hvað. Eftir að hafa legið andvaka ákvað ég að sjá hvort þeirmynduekki færa mig þar sem ég hefði bókað annað en þetta. Svo þeir gerðu og loks um kl 1.30 gat ég farið að sofa. Fór frá Newcastle um 10 og til Durham. Þar var yndislegt að vera. Ég labbaði um kirkjuna, sem er risastór og ótrúlega flott. Eftir aðhafa fengið mér að borða þá labbaði ég um bæinn, meðal annars meðfram ánni sem liggur talsvert neðar en bærinn. Settist niður við hana og skrifaði í einhvern tíma þangað til að tími var komin til að fara aftur að lestarstöðinni. Tók svo lest til York og eftir að hafa leitað mér upplýsinga þá fann ég hostel og fékk flott 4 rúma herbergi sem var hreint og rúmin voru með tjöldum svo þú gast dregið fyrir og verið út af fyrir þig. Þurfti nú ekki á því að halda þar sem ég var ein nema um blánóttina þá fyrstu og ein þá seinni. Skemmti mér ágætlega í York en tók því að mestu leiti rólega. Spjallaði við aðra gesti hér og svona. Fór samt út á sunnudagsmorguninn og fór á Jórvík Víkingasafnið sem var rosa cool. Fullt af "misplaced" þjóðarstolti fannst mer reyndar; ekki vön því að bretar eigni sér víkinga svona og séu svona stoltir af þeim. Talsvert mikið af upplýsingum þarna og mæliég eindregið með heimsóknum þangað ef fólk hefur tækifæri til. Skypeaði svo við mömmu, fór í sturtu og planaði áframhaldandi ferðalag. Ætla núna til Matlock sem er rétt við Peak District National Park og ætla ég mér aðeins að fá að sjá af náttúru þar. Bókaði eina nótt og sé svo til hvort ég bæti annari við þegar ég hef séð hvað er hægt að gera þarna í kring. Kveðja, Gíslína














