Að skrifa niður á blað - Stofnun fyrirtækis
Margir af þeim sem hafa margar hugmyndir og hafa áhuga á að stofna fyrirtæki eru mjög skapandi einstaklingar. Margir af þeim eru líka annaðhvort lesblindir, eða með athyglisbrest. Þeir eða aðrir eru oft líka hræddir við að skrifa hluti niður af ótta við gagnrýni annara. Margir eru ekki með slíka fylgikvilla en hafa einhverja aðra kosti og galla sem mikilvægt er að vinna með og vita um og hafa í huga þegar stofnað er fyrirtæki. Þú vilt ekki að slíkir þættir verði þess valdandi að fyrirtækið nái ekki þeim áætluðum árangri sem stefnt er að. Hvort heldur sem þú fellur í þennan eða annan flokkinn þá breytir það engu með mikilvægi þess að notast sé við blað (word skjal) og penna (lyklaborð) til að skrifa niður þá hugsun sem á sér stað þegar nýja viðskiptamódelið er hugsað. Það er í raun merkilegt þau áhrif sem það getur haft á verkefnið og þá um leið þann fókus sem þú kæri frumkvöðull getur fengið á verkefnið við það eitt að skrifa hluti niður á blað, munnþurku, bakið á umslag eða hvað það nú er. Gott er að hafa í huga að þetta þarf ekki að vera best skrifaði textinn í heimi, hann þarf ekki að vera rétt stafsettur og myndirnar þurfa ekki að passa í hverja útgefna bók sem er. Það eina sem þessi texti þarf að gera er að skiljast. Bæði af þér sjálfum og kannski einhverjum öðrum sem er að vinna með þér, eða sem þarf að skilja hann til að geta rætt við þig um verkefnið framundan. Þetta er í raun fyrsta skrefið og það allra mikilvægasta ef komast á áfram með verkefnið. Það er í raun alveg stórmerkilegt hvað gerist þegar texti /mynd er kominn á blað, hvað maður skilur hugsanir sínar betur, og áttar sig betur á þeim kostum og göllum sem í hugmyndinn fellst. Hvað gerðir þú? Ert þú kannski ekki búin að skrifa fyrsta textann og ert með þetta bara í höfðinu eins og allt annað? Hafðu samband við V6 ef þig vantar aðstoð með að skrifa niður hugleiðingar þínar og fá skilið hvað er hvað, hvernig og afhverju og hvað maður geri svo :) - Góðar stundir.













