The concert is over and some thank yous are in order.
Ég er svakalega heppinn maður, og maður þakklátur. Í síðustu viku hélt ég tónleika og þeir kröfðust mikillar vinnu, vökustunda, stress og streitu eins og gengur og gerist. Sökum þess hversu mikill bavíani ég er, þá reyndi ég að þjösnast í gegn um mest af þessu eins míns liðs en áður en varði var fólk farið að aðstoða mig og haga sér eins og snillingar annað hvort beðið eða óbeðið. Því án slíks inngrips og væntumþykju er ekki hægt að gera svona. Tónleikarnir voru eins flottir og máttu verða, mæting gríðarlega góð (þvílíkt persónugallerí sem lét sjá sig!) og allir tónlistarmenn sáttir. Ég þakkaði ykkur í raunheimum en ég má til með að nótera og þakka enn og aftur af auðmýkt eftirtölu fólki: Valdimar Johannsson (hef sjaldan orðið vitni af slíkri snilld) Mömmu, Andra bróður, Ægi Sindri Bjarnason og hljómsveitarfélögum hans, Mike Crossley og Crossley Design Services, Ásdís Eiðsdóttir og Ægir Draugur, Helgi Gang og Knife Fight Related, Hildur Maral, Virkir Morgnar á Rás 2, Frosti og Máni í Harmageddon X 977, Bergur Thomas Anderson, Rúnar og Úlfur Alexander Einarsson og Oyama í heild sinni, Axel Björnsson, Sverrir Þórðarson, Guðmundur Birgir, Dagbjartur og Brugghús Steðja, BAR 11 og sérstaklega Össur fyrir liðlegheit og beyond the call of duty hjálpsemi, yfirmenn mínir í vinnunni, Ölver frændi, Handsome Hösski, Ingveldur granni, Ási Þórðar og, tja vonandi er ég ekki að gleyma einhverjum. Ennfremur vil ég þakka þeim sem létu vini og vandamenn vita af tónleikunum hér á facebook, vefritum og blöðum.