Og ég heyrði rödd mikla á himni segja: Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors og veldi hans Smurða. Því að þeim sem stóð frammi fyrir Guði dag og nótt og ákærði þau sem trúa hefur verið steypt niður. Og þau hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns og eigi var þeim lífið svo kært að þeim ægði dauði. Fagnið því, himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð því að hann veit að hann hefur nauman tíma. Opinberunarbókin 12:10-12 BIBLIAN #islenka #reikjavik #iceland #icelandic #norse #oldnorse












