Ægisgarður í Reykjavíkurhöfn, um 1960-1970
Glöggt er gests augað
Peter Kidson fór sl. sumar frá Íslandi heim til Bretlands eftir fjögurra ára starf hér á landi hjá brezka sendiráðinu. Hann var leystur úr starfi hjá brezka Utanríkisráðuneytinu nokkru eftir sl. áramót og hélt þá aftur hingað til lands. Eftir eins dags dvöl réði hann sig sem vikapilt á Langjökul, sem þá var að leggja af stað til Bandaríkjanna og úr þeirri ferð kom bann rétt fyrir páska.
– Ég kom til íslands árið 1940 í því augnamiði að leggja það undir mig! Með öðrum orðum ég var sendur hingað sem hermaður þegar Bretar hernámu Ísland í byrjun heimsstyrjaldarinnar. Ég fór þá strax víða um landið, m. a. alla leið norður á Melrakkasléttu. Var sendur þangað um hávetur og fannst þar heldur ömurlegt umhorfs. Seinna var eg settur til eftirlits með farþegum sem til Íslands komu og hafði þá aðsetur i Hafnarhúsinu hér í Reykjavík. Þar fannst mér gott að vera og eignaðist þá marga ágæta vini meðal Íslendinga.
—Vísir mánudaginn 10. apríl 1961 bls. 3
Ljósmynd: Peter Kidson / Pétur Karlsson









