Leikskýrsla: Breiðablik 4-1 KR
Þá er boltinn í Pepsideild kvenna farinn og rúlla og ég lét mig hafa það að kíkja á Kópavogsvöll í kvöld að berja Íslandsmeistarana og þær sem spáð er titlinum aftur augum. KR er víst spáð næstsíðasta sæti og ég veit ekki alveg hvort 2 lið af 10 falla í ár.
Skemmst er frá því að segja að ég var nokkuð hissa hve margir mættu á völlinn. Einhver taldi 612 manns. Það var frítt inn í boði Tengi og einhvers annars fyrirtækis. Score! Fríar pulsur á línuna þegar inn á völlinn var komið. Líka appelsínubátar! Mjög mikið af ungu fólki mætt á völlinn og þá sérstaklega stúlkur. Þegar búið var að kynna leikmenn þrykktu þeir ókeypsi boltum uppí stúku. Það voru minnst 25 boltar sem flugu yfir okkur við mikinn spenning unglinganna. Svo fullt að gera fyrir alla.
En að leiknum sjálfum. Þetta byrjaði nokkuð slappt. Bæði lið mjög mistæk og hægt spil í gangi. Það sem mér fannst strax áberandi var að flestir leikmenn að gefa allt of lausar sendingar og þegar þær komu hnitmiðaðar og fastar fannst mér flestar dömurnar illa til þess fallnar að taka vel á móti. Smá pinball fílingur til að byrja með.
Það varð þó mjög fljótt ljóst að Breiðablikurliðið er margfalt betra en KR og vel skipulagt að öllu leyti. Eftir smá hroll fóru þær að spila eftir eigin nefi og burtséð frá gæðum leikmanna voru þær bara mikið grimmari í boltana sem varð til þess að þeir féllu betur fyrir þær. Það kom svo mark á 24. mínútu og var það vel verðskuldað.
En án þess að fara eitthvað langt framúr sjálfum mér í að dæma kvennaboltann útfrá einum leik er alveg ljóst að um er að ræða langtum síðri bolta en spilaður er í efstu deild karla. Í fyrri hálfleik hvarflaði hreinlega að mér að það væri hálfósanngjarnt að dömurnar væru að spila á velli sem er jafnstór og í karladeild :/. Þær voru það mikið hægari í öllum hlaupum. Það má svo deila um það hvort viðmiðið eigi alltaf að vera karlabolti. Ég held persónulega að það verði nú alltaf þannig.
En í seinni hálfleik mættu þær grænklæddu enn grimmari til leiks og voru fljótar að skora. Að sama skapi lak andleysið af handónýtum KR-stúlkum. Blikastúlkur sýndu virkilega skemmtilega takta allan seinni hálfleikinn og það var ekki leiðinlegt að horfa á leikinn yfir það heila. Þær voru vel meðvitaðar um hlaup hverrar annarrar og reyndu skemmtilegar sendingar sem var svosem auðvelt því KR-stúlkur lyftu varla litla fingri til að stoppa þær. Það var ein á vinstri kanti sem var mjög snögg með boltann og dúndraði bara upp kantinn alein og inn í teig og þrumaði í markið. Það var keppnis.
Yfir það heila er tilfinning mín að mér eigi eftir að leiðast yfir gæðunum sem í boði eru þegar Blikastúlkur eru ekki að spila. En ef Stjarnan og Valur eru að gera eitthvað í þessum dúr get ég vel hugsað mér að þetta verði skemmtilegt sumar, þó ég bíði með fullnaðardóm um hvar á gæðaskalanum þetta liggur alltsaman.
Valur vs. KR á Vodafone í næstu viku. Verður gaman að sjá MLV skora 5 á ruslið frá Frostaskjóli.












