Þessi grein fjallar hvernig tölvu tækni tengist reynslu af vinnu og frítíma við starfslok. Því er haldið fram að rannsóknir um upplýsinga- og samskiptatækninotkunar til tómstunda sé vanrækt hjá eldri aldurshópum því rannsóknir með eldra fólki sýni ekki huglægu merkingu þeirra á hvort netnotkun þeirra sé vinna eða tómstundir.
Þátttakendur rannsóknarinnar notuðu oft tölvur og internetið til að auðvelda sér tengingar við tómstundir og stundum var tölvan undirstaða tómstundarinnar, til að mynda spilaðir leikir eða vafrað um netið. Hins vegar áttu þátttakendur oft í vandræðum með að skilgreina hvort að aðgerðir þeirra væru tómstundir eða ekki því athafnir þeirra voru ekki alltaf í samræmi við þær hugmyndir sem þeir höfðu um tómstundir.
Þetta hik þátttakenda til að skilgreina tölvutækni sem tómstundir kann að endurspegla muninn á milli kynslóða þar sem eldra fólk virðist almennt vera á báðum áttum um viðhorf sitt til tækninar. Þetta er í mótsögn við rannsóknir á börnum þar sem þau eru líklegri til nýta tæknina undir tómstundir og skemmtun.











