Þetta er hún Kristrún, hún er í starfsnámi hjá okkur í Hugsmiðjunni í tengslum við lokaritgerðina sína í meistaranámi í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands. Hún ætlar í ritgerð sinni að fjalla um efnisstefnu (e. Content strategy) og efnismarkaðssetningu á vef og þá þróun og vakningu sem hefur orðið innan vefgeirans í þeim málum.
Hún er fyrsti starfsneminn sem kemur til okkar í tengslum við textagerð og skrif á vefinn og hefur hún m.a. verið að rýna í vefi viðskiptavina Hugsmiðjunnar. Hún er jafnframt sú fyrsta sem ákveður að sækja um starfsnámsstöðu hjá veffyrirtæki í sínu námi og tökum við því fagnandi.
Við trúum því að ekki sé hægt að gera almennilegan og aðgengilegan vef nema að efnið á honum sé algjörlega í lagi.
Kristrún er búin að koma sér vel fyrir og ætlar að vera hjá okkur í nokkrar vikur í viðbót. Hún hefur sjarmerað okkur algjörlega upp úr skónum og það er heldur betur lærdómsfullt fyrir okkur hin að hafa svona "efnisnörd" til taks.