i'd like to SLAM DUNK a reserve for komachi onozuka from touhou, today's date is 5/31 and i can be reached on twitter at @_ambellina. thank you kindly!!
Komachi has been reserved for you!
-Phantasm mod

seen from United States

seen from United Kingdom

seen from United States
seen from Canada
seen from China
seen from South Korea
seen from United States
seen from United States

seen from Sweden
seen from Sweden
seen from United States
seen from Italy

seen from United Kingdom
seen from France
seen from United Kingdom

seen from United Kingdom

seen from Japan
seen from Australia

seen from Japan

seen from Philippines
i'd like to SLAM DUNK a reserve for komachi onozuka from touhou, today's date is 5/31 and i can be reached on twitter at @_ambellina. thank you kindly!!
Komachi has been reserved for you!
-Phantasm mod
Kjúklingabaunabuff
Jæja, nú fær litla leikskólaeldhúsið afnot af eldhúsi á Akureyri. Takk mamma! Mér bárust þó nokkrar uppskriftir að allskonar girnilegum grænmetisbuffum frá leikskólum landsins. Og í dag eldaði ég kjúklingabaunabuff að hætti leikskólans Laufskála. Ég eldaði stóra uppskrift svo hægt yrði að frysta slatta. Það er nefnilega mjög þægilegt að eiga nokkur buff í frystinum sem hægt er að afþýða og elda þegar sá er gállinn á manni. Kjúklingabaunir eru í raun fræ en eru oftast flokkaðar með baunum. Á ensku heita baunirnar (fræin!) chickpeas, sem komið er úr frönsku, chiche. Baunirnar eru auðugar af próteinum, kolvetnum og steinefnum. Ekki er verra að baunir eru fremur ódýrar og seðjandi. Því er bæði gott fyrir pyngjuna og kroppinn að innbyrða kjúklingabaunir af og til. Kjúklingabaunabuff (fyrir ca. 8-10 manns)
2 dósir kjúklingabaunir
100 gr hirsifræ
150 gr hýðishrísgrjón
2 rauðlaukar
2 hvítlauksgeirar (eða eftir smekk)
2 msk mango chutney
túrmerik (eftir smekk)
taaza masala frá Pottagöldrum (eftir smekk)
kóríander, malað (eftir smekk)
cumin, malað (eftir smekk)
steinselja (eftir smekk)
2 msk kjúklingakraftur
Kartöflumjöl eftir þörfum
Aðferð
Hirsifræ og hýðirhrísgrjón soðin.
Kjúklingabaunir hakkaðar.
Hirsifræjum, hýðishrísgjrónum og kjúklingabaunum blandað saman, þegar hirsið og grjónin hafa kólnað.
Kryddunum blandað saman við ásamt lauk, hvítlauk og mango chutney.
Ef degið er mjög blautt má blanda kartöflumjöli saman við.
Látið blönduna bíða í kæli yfir nótt.
Buffið steikt á pönnu, síðan eldað í ofni við 180 gráður í ca. 10 mín.
Athugasemdir
Þar sem baunir og hrísgrjón hafa frekar hlutlaust bragð notaði ég kryddin óspart.
Ég notaði lítið af kartöflumjöli. Blandan var fremur klesst en ég held hún hafi átt að vera svoleiðis.
Hér voru buffin borin fram ásamt ab sósu (1 hluti ab mjólk + 1 hluti sýrður rjómi + sítrónusafi), mango chutney, hrísgrjónum og fersku salati. Verði ykkur að góðu!