Kjúklinganúðlur
Jæja, nú dusta ég rykið af þessu bloggi og skelli inn uppskrift frá leikskólanum Austurborg í Reykjavík. Að þessu sinni er um að ræða uppskrift að kjúklinganúðlum sem matráðurinn Vilborg sendi mér.
Kjúklinganúðlur 1 kjúklingur soðinn
5 pakkar núðlur
2 blóm brokkolí
2 stk papríkur
8 stk gulrætur
1 haus kínakál
1 stk laukur
3 rif hvítlaukur
1 teningur kjúklingakraftur
1 teningur grænmetiskraftur
pipar eftir smekk olía til steikingar
Aðferð
Laukur og hvítlaukur steikt í olíu ásamt kraftinum. kjúklingur tekinn af beinum og settur út í. Kryddað með pipar síðan er soðið af kjúklingi sett út í. Síðan er grænmeti sett út í og látið malla. Núðlur soðnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Öllu blandað saman. Athugasemdir Haldið þið að ég hafi ekki ruglast í búðinni og keypt frosið spínat í staðinn fyrir spergilkál! Það bragðaðist samt bara vel :) Skammtastærðinar eru heldur stórar það þarf að minnka þær eftir þörfum.












