Áhrif kláms á börn og unglinga
Ég las áhugavert lokaverkefni um daginn sem vakti mig til umhugsunar um stöðu kynfræðslu á Íslandi á dögum klámvæðingar og auknu aðgengi að netmiðlum. Lokaverkefnið er eftir Elvu Hreiðarsdóttur og er til BA-gráðu í félagsfræði. Titill ritgerðarinnar er “Alþjóðavæðing klámsamfélagsins. Ógnir við kynlífsheilbrigði unglinga.”
Í rannsókninni er skoðað hvort unglingum á aldrinum 14-19 ára stafi ógn af fjölmiðlum og netmiðlum með aukinni klámvæðingu og hvort það hafi áhrif á kynlífsheilbrigði þeirra. Ég dreg hér fram helstu atriðin úr ritgerðinni.
Aukin tækni hefur leitt til þess að aðgangur barna og unglinga að kynlífstengdu efni hefur aukist til muna. Á veraldarvefnum greiður aðgangur að efni sem sýnir ranga mynd af kynlífi og rannsóknir sýna að við 11 ára aldur hafa flest börn komist í tæri við kynlífstengt efni.
Rannsóknir Lo og Wei (2005) sýna fram á að áhorf kláms hafi áhrif á kynhegðun unglinga því efnið getur gefið mjög skakka mynd af því sem telst vera eðlilegt kynlíf auk þess sem algengt er að klámefni innihaldi niðurlægjandi kynlíf í garð kvenna. Því getur klámnotkun haft mikil áhrif á sjálfsmynd og kynheilbrigði unglinga.
Rannsóknir hafa sýnt að áhrif kláms geta verið margvísleg, til dæmis hefur klám þau áhrif að margir drengir hafa óraunverulegar hugmyndir um kynlíf og kynhegðun almennt. Auk þess getur klám sett vissa pressu á unglingsstúlkur til að sýna af sér kynferðislega hegðun svo sem að taka af sér klámfengnar myndir eða myndbönd sem þær birta á samskiptsíðum og telja að slíkt sé kynþokkafullt, skemmtilegt og flott.
Einnig hefur verið sýnt fram á samband milli klámnotkunar og viðhorfi til nauðganna að því leyti að því oftar sem unglingar horfa á klám því meiri líkur eru á því að þeir kenni fórnarlömbum nauðgana sjálfum um vegna klæðnaðar þeirra.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fræðimanna er það samt staðreynd að ekki hefur tekist að sýna fram á bein tengsl milli kláms og kynferðislegs ofbeldis eða kynferðisafbrota. Það hefur því ekki verið sýnt fram á að klámneytendur séu líklegri en aðrir til að beita kynferðislegu ofbeldi.
Íslensk rannsókn frá árinu 2010 sýndi að 75,9% íslenskra drengja á aldrinum 16 - 19 ára horfa á klámfengið efni vikulega eða oftar en 7,3% íslenskra stúlkna á þessum aldri. Niðurstöður þessara rannsókna sýna svo ekki verði um villst að gríðarlegur munur er á klámnotkun drengja og stúlkna. Kynfræðsla
Kynfræðsla hefur oft verið gagnrýnd fyrir að vera bundin meira við áhættuhegðun unglinga frekar en að leggja áherslu á að styrkja unglinga og auka færni þeirra á sviði kynlífs. Hún miðast oft við að koma í veg fyrir kynsjúkdóma og þunganir meðal unglinga. Það að halda hræðsluáróður um afleiðingar kynlífs er ekki nægjanlegt. Markmið kynfræðslu ætti að vera að styrkja sjálfsmynd einstaklingsins og auka færni hans til að takast á við ýmis flókin atvik í kynferðislegum samskiptum. Nauðsyn kynfræðslu nú á dögum er jafnvel meiri en áður vegna þeirra breytinga sem orðið hafa í samfélaginu. Með tilkomu internetsins eru fleiri aðilar farnir að koma að fræðslu barna og unglinga, til dæmis hinir ýmsu fjölmiðlar og annað efni á netinu. Sú fræðsla sem þaðan hlýst er ekki alltaf raunhæf og byggist ekki endilega á kynímyndum eða samskiptum sem þykja heilbrigð í kynlífi. Margir unglingar telja til að mynda gróft klám vera fræðsluefni sem hægt sé að nýta sér í kynferðislegum samböndum og setja samasem merki á milli kláms og kynlífs. Unglingar fá því margvísleg skilaboð um kynhlutverk og líkamann og oft á öfgakenndan og niðurlægjandi hátt. Það er því mikilvægt að ungt fólk átti sig á þessum skilaboðum og öðlist færni í að skoða þau á gagnrýninn hátt t.d. með hjálp góðrar kynfræðslu. Börn sem hafa fengið fræðslu um ábyrga hegðun í kynlífi eru líklegri til þess að sýna ábyrgð þegar þau byrja að stunda kynlíf.
Markmiðið kynfræðslu ætti því að vera að hjálpa unglingum að mynda sér eigin viðhorf og gildi varðandi kynlíf þannig að þeir verði færir um að taka sjálfstæðar ákvarðanir í kynlífi. Spurningin er ekki hvort unglingar eigi að stunda kynlíf heldur hvenær þeir eigi að byrja stunda kynlíf. Hér er linkur á lokaverkefni Elvu í heild sinni.











