Taktu ákveðinn dag í hverri viku til þess að sinna stórþrifum eins og að ryksuga, skúra, skipta um á rúmum, þrífabaðherbergi, setja í þvottavélar og þurrka af. Sunnudagar, um og eftir hádegi hafa reynst mér vel og öll verkin taka í kringum eina og hálfa klukkustund (fer eftir stærð heimilis).
Settu það sem reglu að vaska upp eftir máltíðir og/eða í lok hvers dags ef þú ert ekki með uppþvottavél. Strjúktu svo af borðum og eldavél í leiðinni. Þetta tekur í kringum 5-10 mínútur og sparar manni tíma síðar meir.
Ryk og óhreinindi geta orðið áberandi á baðherberginu og ef þú notast við hreinsiklúta til að þvo þér í framan á kvöldin er sniðugt að strjúka af vaskinum/klósettinu annan hvorn dag með því sama og henda því svo í ruslið.
Hver kannast ekki við að heilu fjöllin af þvotti safnist upp á örfáum dögum? Kíktu í þvottakörfuna annan hvorn dag og sjáðu hvort eitthvað þarf að þvo eða hvort eitthvað er á snúrunni/í þurrkaranum sem þarf að brjóta saman. Þá sleppurðu við að eyða heilum dögum í þvott.
Mér finnst góð regla að rykmoppa gólfið á 2-3 daga fresti á milli þess sem ég ryksuga eða skúra til að forðast ló og ryk á gólfinu. Klútarnir sem fást á rykmoppur eru sniðugir að því leyti að þeir draga í sig óhreinindi um leið og efnið í þeim gerir gólfið glansandi fínt!
Ég er hræðileg með fatahrúgur og óskipulagðan fataskáp, en ef maður hengir fötin upp sem maður ætlar ekki að vera í þann daginn skapast hellings pláss og tími við að leita að þeim á morgnana :)