Í gær var skólasetning í skólanum mínum. Eftir hana fór ég niður í nemendakjallara að taka myndir af nýju Verzlópeysunum. Þar sem ég sit í stjórnarnefndinni Málfundafélag Verzlunarskóla Íslands sé ég og nefndin mín um allt í kringum þessar peysur, meðal annars að mynda þær. Við vorum búin að taka myndir af peysunum áður en vildum gera það aftur í meira skipulagi. Svo í gær fórum við og fyrir tilviljun voru nokkrir strákar niðrí kjallara og fengum þá til þess að sitja fyrir í peysunum. Skemmtilegasta var við þessar nýju myndir er það að Haukur (ljósmyndari í Vessló) kenndi mér smávegis á flassið og hvernig ég átti að stilla myndavélina og eftir að hafa talað við vin minn um ljósmyndaáhugann hjá mér er ég búin að ákveða að fara á nokkur námskeið og virkilega læra á myndavélar, þar sem þetta er svo gaman. Þið- s.s. þið öll sem virkilega skoða þessa síðu (mamma og pabbi)- getið séð muninn á þvi sem ég tók með fínu stillingunum og bara hreinlega með engu flassi (síðustu tvær myndirnar)








