Minecraft
Það er margt sem Minecraft gagnast í. Það góða við leikinn er að það eru engar leiðbeiningar sem fylgja honum. Heldur verður spilarinn að gera það sem hann telur réttast. Spilarinn verður að gera hvað hann getur til að halda sér á lífi. En þetta gerir Minecraft að mjög skapandi leik.
Kosturinn er að það er hægt að spila Minecraft á marga vegu. Ef þú vilt spila með öðrum ferðu á netþjón (server) og inn í einhvern heim með öðrum spilurum. Margir kynnast öðrum spilurum og spila jafnvel leikinn og tala saman á Skype.
Það eru til margar skipanir í Mincraft og ýmsar upplýsingar um hvernig eigi að gera ákveðna hluti eins og til dæmis að fá rauða ull. Á síðunni http://minecraft.gamepedia.com/Minecraft_Wiki er hægt að nálgast upplýsingar um ýmislegt, en það er ekki nokkur leið að muna allar skipanirnar.









