Stalst í ís 🍦#lactoseintolerant #canteatthis #onlygodcanjudgeme #2pac (at Bakken)
"I'm Dorothy Gale from Kansas"
$LAYYYTER

pixel skylines
I'd rather be in outer space 🛸

Kaledo Art

Product Placement
YOU ARE THE REASON
Today's Document
trying on a metaphor
cherry valley forever

#extradirty
todays bird
Xuebing Du
Sade Olutola
TVSTRANGERTHINGS
Cosmic Funnies

Andulka
Sweet Seals For You, Always
occasionally subtle
dirt enthusiast
seen from United States

seen from United States

seen from United States

seen from United States

seen from United States
seen from United States

seen from Malaysia

seen from United States
seen from United States

seen from Germany

seen from France

seen from United States

seen from Poland

seen from Malaysia
seen from United States
seen from United States

seen from United States

seen from United States
seen from Vietnam

seen from Ecuador
@katrinlenath
Stalst í ís 🍦#lactoseintolerant #canteatthis #onlygodcanjudgeme #2pac (at Bakken)
Stalst í ís 🍦#lactoseintolerant #canteatthis #onlygodcanjudgeme #2pac (at Bakken)
Stelpan tekur sig vel út í hásætinu #gameofthrones #halloffaces (at Øksnehallen)
#notathugtoday #notathug #notathugeveryday (at Strøget)
Þögbjörg að fá sér #thug #thuglife #thuglove #thugpug #yungthug #realthugmusic #og (at Strøget)
Síðasti dagurinn #hvarereinar #nyhavn (at Nyhavn - New Harbour Copenhagen)
#þarnaereinar (her: Strøget)
Kata, Mía og dreki #hvarereinar (her: LEGO Store Copenhagen)
#vscocam #nofilter #royalbirthday (her: Amalienborg)
Stelpan að reppa Ísland á afmæli drottningarinnar 👑💂 (her: Amalienborg)
Föstudags #blackandwhiteselfie 💀
The matrix meets lazy boho 🔫👽
#toocoolforschool #fabulous (her: Strøget)
Fékk sæta Kelann minn í heimsókn yfir páskana ❤ Það var ekkert smá gott að fá hann í heimsókn! Hann kom með páskaegg handa stelpunum og slóg þar af leiðandi alveg í gegn. Við vorum í eina nótt heima hjá mér og svo vorum við 2 nætur á hóteli í Köben og enduðum ferðina svo hjá Snæbirni. Við geruðum allt og ekkert í þessa 5 daga en einbeittum okkur bara af því að njóta félagskap hvors annars.
17.03.2016 Það búa 2 hestar, 2 kindur og 1 hundur við hliðina á skólanum. Stundum stoppum við og spjöllum aðeins við dýrin þegar við erum á leiðinni heim og í dag tók ég epli og gulrætur með og við gáfum hestunum. Ida var pínu hrædd og kastaði gulrótunum til þeirra en Marie var algjör daredevil og óð í þetta, bauðst meira að segja til að kenna systur hvernig ætti að heta þetta.. Ida vildi ekki þyggja nein ráð frá systur sinni. Í kvöld er svo spaghetti og kjötbollur í matinn nammmmm
Laugardagur 27.02.2016
Í dag átti Pernille fertugsafmæli. Hún var vakin með afmælissöngnum og opnaði svo pakka frá fjölskyldunni. Frá Idu fékk hún tvo miða í bíó svo þær mæðgur geti farið saman við tækifæri, svo fékk hún sápugerðarkit frá Marie og risablómvönd og loforð um skartgrip að eigin vali frá Thomas (ekki beint frumlegur í gjafavali grey kallinn). Við stelpurnar sem höfum verið au pair hjá Thomas og Pernille ákváðum að gefa Pernille flotta afmælisgjöf frá okkur öllum saman og keyptum ‘’Twist a Twill’’ teppi sem er hannað af danska hönnuðinum Tinu Ratzer. Hún varð heldur betur hissa á að okkur hafi dottið þetta í hug og ekkert smá ánægð með gjöfina, hún sagðist einmitt hafa verið að leita sér að einhverju gulu í stofuna sem passar við málverkið á veggnum svo liturinn hitti beint í mark! Eftir gjafirnar var svo flottur morgunmatur sem Thomas hafði útbúið þannig ég var orðin vel útblásin af brauði og kökum fýrir hádegi!
Um hálf ellefu var förinni heitið í Den Blå Planet, sem er risa aquarium rétt hjá flugvellinum. Ég tók myndavélina mína með en það þýddi ekki mikið að reyna að taka myndir þarna í myrkrinu. Ég náði að kynnast Idu mun betur í dag, henni fannst svo gaman í aquariuminu og hélt í höndina á mér allann tímann og leiddi mig útum allt og sýndi mér mismunandi fiska. Piranha fiskarnir voru í uppáhaldi hjá mér en stelpunrar voru báðar hrifnastar af skötunum og hamarháfnum. Um 1 leytið borðuðum við hádegismat í Den Blå Planet, mötuneytið þar heitir Ostur.. mér finnst það mjög skrítið nafn. Við stelpurnar fengum okkur allar fish and chips, við Ida vorum samt báðar latar að borða fiskinn því franskarnar voru svo góðar! Eftir matinn stoppuðum við í gjafavörubúðinni og stelpurnar fengi báðar að velja sér dót. Þær völdu báðar skartgripaskrín með allskonar glimmeri og steinum á.
Á leiðinni heim sofnuðu allir í bílnum, nema ég því ég var of upptekin að reyna að senda mér mynd af mér og skötu frá símanum hans Thomas, það virkaði ekki og ég er enn að reyna. Myndin mun heita ‘’Katan og Skatan’’ Þegar heim var komið voru allir svo dasaðir eftir lúrinn að því var bara tekið rólega til kvöldmats, ég reyndar skellti mérr í ræktina og tók á því á meðan þau hin slökuðu á heima, svo kom ég beint heim í afmæliskvöldmatinn. Í matin voru minipizzur ala Ida og rauðvín með! (því það þarf alltaf að vera vín)
Fimmtudagur 25.02.2016
Ég byrjaði daginn á að vakna kl.6:20 eins og venjulega og græja morgunmat og madpakke hand Idu.
Um 7 leytið fannst mér svo voða góð hugmynd að leggja mig, ég hafði sofið illa um nóttina og vildi endilega mæta í zumba kl.10. Ég hugsaði með mér að ég þyrfti ekkert að stilla vekjaraklukku, ég myndi vakna sjálf um 8 eða 9 eins og ég geri venjulega. Ég vaknaði í panikki kl.10:02, nýbúin að missa af zumba. Ég var ekki sátt, alveg brjáluð reyndar. Þá ákvað ég að þetta lágkolvetna matarræði mætti fara til fjandans. Ég hjólaði niðrí búð og keypti mér súkkulaðistykki, þetta var besta súkkulaði sem ég hef borðað.. eða mér fannst það allavega þá eftir næstum því 4 daga af næstum engum kolvetnum. Jebb, ég entist í 4 daga. Eða ekki einu sinni 4, 3 og hálfann. Ég gúffaði þessu súkkulaði í mig á hálfrí mínútu og fékk reyndar brjálað samviskubit eftir á því ég hafði þraukað HEILA 3 DAGA. Ég fattaði síðan hvað það var ógeðslega asnalegt að brjálast svona útaf engu og hjóla eins og brjálæðingur útí búð, í brjáluðu skapi, til þess eins að kaupa mér súkkulaði og éta það í fýlu. En ég fattaði það náttúrulega eftir að ég var búin með súkkulaðið. Ég ákvað þá að nýta þessa ferð til Holte í eitthvað sem ég þyrfti svona í alvöru að gera. Ég keypti í matinn, sótti pakka á pósthúsið og skellti mér í ræktina í hálftíma.
Þegar ég kom heim þá biðu mín þrif sem tóku 2 tíma og þegar því var lokið þá datt mér í hug að það gæti verið gaman að baka saman með Marie þegar við kæmum heim og henti í snúðauppskrift sem ég sá á facebook og lét deigið hefast á meðan ég sótti hana í leikskólann.
Marie var sko alveg til í að baka snúða og sýndi mér að Pernille hafði kennt henni að nota rúllukefli! Hún sagði mér að maður ætti ekkert að vera að drífa sig þegar maður er að fletja út, bara svona stille og rolig og taka sér tíma í þetta, gera þetta vel. Hún setti líka kanilsykurinn á deigið (var ekkert að spara sykurinn) og setti snúðana svo á plötuna. Á meðan við bökuðum hlustuðum við á tónlist og hún söng með.
Þegar snúðarnir voru komnir í ofninn var kominn tími á að elda kvöldmat. Marie var sko ekki til í að hjálpa, hún var víst svona alveg dauðþreytt eftir baksturinn og fannst hún þurfa á því að halda að leggjast aðeins niður og horfa á sjónvarpið.
Ég eldaði spaghetti og kjötbollur og svo var brauð og salat með. Ég bjó kjötbolllurnar og sósuna til sjálf og þetta heppnaðist svona ljómandi vel! Marie gat samt ekki beðið eftir að smakka snúðana og sagði mömmu sinni og Idu frá bökunarferlinu á meðan við borðuðum og var líka alveg búin að ákveða hver fengi hvaða snúð og hversu margir snúðar yrðu geymdir til næsta dags. Þegar hún fékk svo snúð sagði hún að þeir væru svo góðir að þeir væru næstum betri en nammi!
// Ég reyndi að taka myndir af snúðunum og bakstrinum en myndavélin í símanum ákvað að fara í verkfall í 3-4 tíma, týpískt!