Edduverðlaun 2015
2025 on Tumblr: Trends That Defined the Year
d e v o n
sheepfilms

oozey mess

Janaina Medeiros

No title available
Jules of Nature

⁂
Cosimo Galluzzi
Show & Tell
Game of Thrones Daily

Discoholic 🪩
TVSTRANGERTHINGS

Love Begins

izzy's playlists!

JVL
No title available

Kiana Khansmith
Peter Solarz

if i look back, i am lost

seen from United States
seen from United States

seen from United States

seen from Singapore
seen from United Kingdom
seen from United States
seen from United States

seen from Netherlands
seen from Brazil
seen from Mexico
seen from United States
seen from Canada

seen from Canada
seen from United States

seen from Malaysia

seen from United States
seen from United States
seen from India
seen from Mexico
seen from United States
@poppoli-isl
Edduverðlaun 2015
Borgríki 2 á kvikmyndahátíð í Hollandi
Borgríki 2 – Blóð hraustra manna, nýjasta kvikmynd Ólafs de Fleur Jóhannessonar, hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam í Hollandi. Um er að ræða alþjóðlega frumsýningu myndarinnar þar sem þetta verður fyrsta hátíðin sem myndin mun taka þátt í eftir að hafa verið frumsýnd hinn 17. október sl. í Háskólabíói.
Hátíðin mun fara fram frá 21. janúar til 1. febrúar. Í tilkynningu segir að valið á Rotterdamhátíðina sé mikill heiður, enda er hátíðin ein fárra svokallaðra A-kvikmyndahátíða í heiminum.
Borgríki 2 – Blóð hraustra manna mun taka þátt í „Spectrum“-hluta Rotterdamhátíðarinnar. Spectrum leggur áherslu á að sýna nýjar kvikmyndir í fullri lengd eftir kvikmyndagerðarmenn sem aðstandendur hátíðarinnar telja að hafi átt mikilsverð framlög til alþjóðlegrar kvikmyndamenningar. Ein af fyrri myndum Ólafs, Stóra planið, var valin til þátttöku á hátíðinni árið 2009.
Borgríki (2011) er nú til leigu
Poppoli kvikmyndafélag býður nú áhugasömum að kaupa sér aðgang að kvikmyndinni Borgríki (2011) á veraldarvefnum til áhorfs. Borgríki kom út seinni hluta árs 2011 og hlaut mjög góða dóma og aðsókn hér á landi. Hún hefur nú selst til fjölmargra landa sem og til endurgerðar í Bandaríkjunum.
Ráðist var í gerð framhalds árið 2013 og mun sú mynd líta dagsins ljós í október þessa árs. Sem fyrr er handritið skrifað af Hrafnkeli Stefánssyni og Olaf de Fleur, sem jafnframt leikstýrir. Áhorfendur geta átt von á mjög spennandi og kraftmikilli mynd og ekki er verra að vera búinn að sjá fyrri myndina, þó að um sjálfstætt framhald sé að ræða.
Til að horfa á fyrri myndina í gegnum Poppoli fylgið upplýsingum hér fyrir neðan.
Góða skemmtun.
Leiguverð er 399 kr og gildir í 48 klukkustundir.
buy
Svona fer greiðslan fram:
- Greitt er í gegnum Paypal eða beint með kreditkorti.
- Eftir greiðslu ertu áframsend/ur á Sellfy síðuna okkar þar sem þú halar niður skrá með leiðbeiningum til að horfa á myndina.
- Til öryggis færðu einnig sendan tölvupóst með hlekk á þessa skrá.
*Aðeins er mögulegt að leigja myndina á Íslandi / The movie is only available for rental in iceland.
FÁ EKKI GÓÐAR HUGMYNDIR Á ÍSLANDI
Kvikmyndaleikstjórinn Ólafur de Fleur situr sveittur við að klippa mynd sína Borgríki 2: Blóð hraustra manna. Myndin er framhald glæpamyndarinnar Borgríkis sem hann gerði mikla lukku með fyrir tveimur árum. Og skáldsagan Hraustra manna blóð, eftir Óttar Martin Norðfjörð, er nýkomin út en hana byggir Óttar á grunnhugmynd framhaldsmyndarinnar. Ólafur fékk þá hugmynd á sínum tíma að gaman væri að fylgja Borgríki eftir með bók og hann fékk Óttar til verksins. Þeir náðu vel saman og hræra nú í ýmsum pottum hvor hjá öðrum. Þeir ræða hér um samstarfsverkefnið, sókn á erlenda markaði og yfirheyrslur á geimverum.
Hollywood-stjarna í Borgríki II
Dramað er sykurinn í lífinu - Viðtal við Olaf de Fleur
Tökur á Borgríki 2 eru hafnar og segir Kristín Andrea Þórðardóttir, framleiðandi, þær ganga vel.
Framleiðslufyrirtækið Summit, sem meðal annars á heiðurinn af Twilight-vampíruæðinu og Óskarsverðlaunamyndinni The Hurt Lcoker, hefur keypt hugmynd Ólafs Jóhannessonar að framtíðartrylli. Framleiðendurnir á bakvið nýjustu kvikmyndina um Prúðuleikarana ætla fjármagna hugmyndina.
Borgríki er komin út á DVD - þar er að finna, ásamt myndinni, ýmislegt aukaefni svo sem commentary, gerð myndarinnar ofl.
Ólafi Jóhannessyni, kvikmyndaleikstjóra, hefur verið boðið að leikstýra kvikmynd í Hollywood. Ólafur hefur átt í viðræðum við mjög þekktan og umsvifamikinn framleiðanda í kvikmyndaborginni en hann hefur verið með annan fótinn í Bandaríkjunum að undanförnu.
Ódauðleg Ást eftir Ómar Hauksson | Framleidd af Olaf de Fleur og Kristínu Þórðardóttir
Edduverðlaun | Tilnefningar 2012
Eddutilnefningar voru tilkynntar á dögunum og erum við hjá Poppoli kvikmyndafélagi afar stolt yfir því að hafa fengið 13 tilnefningar í hús fyrir myndir okkar Borgríki og Kurteist fólk sem báðar komu út á síðasta ári. Borgríki hlaut meðal annars tilnefningu sem besta mynd, en Olaf de Fleur hlaut einnig tilnefningu fyrir bestu leikstjórn og Sigurður Sigurjónsson tilnefningu sem leikari í aðalhlutverki. Kurteist fólk hlaut tilnefningu fyrir besta handrit og Eggert Þorleifsson tilnefningu sem leikari í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína sem Markell sveitasjóri í Búðardal. Við erum stolt og hrærð og viljum þakka öllu okkar tökuliði og leikurum sem hafa komið að gerð mynda okkar, sem og tónlistarfólki sem ljáð hefur myndunum sína tóna og stuðningsaðillum sem hafa styrkt okkur með fé eða vörum. Kvikmyndamiðstöð Íslands og dreifingaraðilli okkar Myndform frá alveg sérstakar þakkir fyrir farsælt samstarf. Eddunni verður sjónvarpað beint frá Gamla Bíó á Stöð 2 næstkomandi laugardagskvöld. Hér fyrir neðan getur að líta fullt yfirlit yfir tilnefningar sem myndir okkar hlutu.
Borgríki:
BÍÓMYND ÁRSINS
Leikstjóri ársins: Olaf De Fleur Johannesson
Leikari ársins í aðalhlutverki: Sigurður Sigurjónsson
Kvikmyndataka ársins: Bjarni Felix Bjarnason & Gunnar Heidar
Klipping ársins: Olaf de Fleur & Sigurður Eyþórsson
Hljóð ársins: Gunnar Arnason
Leikmynd ársins: Heimir Sverrisson
Búningar ársins: Ellen Loftsdottir
Gervi ársins: Elín Reynisdóttir & Eygló Ólöf Birgisdóttir
Kurteist Fólk:
Handrit ársins: Olaf De Fleur Johannesson & Hrafnkell Stefánsson
Leikkona ársins í aukahlutverki: Halldóra Geirharðsdóttir & Margrét Ákadóttir
Leikari ársins í aukahlutverki: Eggert Þorleifsson
Borgríki | Endurgerð í Hollywood
Glæpamyndin Borgríki eftir Ólaf Jóhannesson hefur lagst vel í landann og hefur að auki vakið athygli og áhuga stórlaxa í Hollywood. Greint hefur verið frá því að leikstjórinn James Mangold hyggist endurgera Borgríki Vestanhafs.
Mangold var þó síður en svo eini þungavigtarmaðurinn sem sýndi mynd Ólafs áhuga og nokkuð margir munu hafa verið um hituna. Fréttatíminn hefur þannig heimildir fyrir því að einn heitasti leikstjórinn í Bandaríkjunum um þessar mundir, sjálfur Christopher Nolan, hafi sýnt Borgríki áhuga en lögmaður hans mun hafa falast eftir því að fá að skoða myndina.
Nolan hefur undanfarin ár gert það gott með nýju myndunum um Batman og sló hressilega í gegn með Inception í fyrra.
Framleiðendur kvikmyndarinnar Borgríkis fóru óhefðbundnar leiðir til að fjármagna gerð myndarinnar. Myndin var framleidd í miðri efnahagskreppu þar sem allmikið hafði verið skorið niður í framlögum til kvikmyndagerðar.
Borgríki Wojciech Golczewski - Tónlist úr myndinni
Borgríki | Biofilman | Gagnrýni
★★★★
Magnús Michelsen
Borgríki er nútíma glæpasaga úr reykvískum raunveruleika sem segir frá serbneskum bifvélavirkja sem missir ófætt barn sitt í árás. Í hefndaraðgerðum sínum tvinnast örlög hans saman við lögreglukonu sem ýtt er út á ystu nöf, spilltan yfirmann hennar í fíkniefnadeild lögreglunnar og glæpakóng sem er að missa tökin á veldi sínu.
Borgríki Karakterar - Viðtöl við leikara