Ný saga - "Þrá hennar"
http://sexysogur.wordpress.com/2014/01/14/thra-hennar/
Hún gekk inn í myrkvaðan salinn í Álfabakkanum. Risastórt tjaldið iðaði af litum og hraða, hljóðið skrúfað rétt upp undir sársaukamörk. Myndin var byrjuð. Það var í lagi. Betra að koma inn í myrkrið, þurfa ekki að mæta augnaráði fólksins í salnum.
Spennan hríslaðist niður hrygg hennar þar sem hún stóð efst í salnum á meðan augun vöndust myrkrinu. Ljóshærð. Lágvaxin. Poppið í annarri hendi, kókið í hinni, til málamynda. Faldur kápunnar gældi við hné hennar. Tærnar krepptust í flatbotna skónum. Andardrátturinn titrandi.
Hún var ekki komin til að horfa á myndina. Valdi hana bara út af salnum og sýningartímanum. Síðasta sýning í miðri viku, stór salur. Líklegt að fólk sæti dreift um slainn. Ekki allt of margir. Hún þorði ekki ef það voru of margir.
Hún var komin til að fullnægja þörf. .....












