Á talinu: Lúlú
Tvær stelpur úr hópi fréttablaða og fjölmiðla fóru í heimsókn í eldhúsið í skólanum og ætluðu að spyrja Lúlú nokkurra spurninga, en helst voru þær að pæla í því hvernig mötuneytið kæmi fram í hennar lífi.
,,Við ætlum að spyrja þig nokkurra spurninga ef það er í lagi þín vegna.″ Lúlú svaraði játandi og við tókum við hana skriflegt viðtal vegna þess að hún var með hálsbólgu og við það að missa röddina.
Erla og Guðmunda: ,,Hvenær byrjaðir þú við störf í mötuneytinu?“
L: ,,1997.“
E: ,,Það hefur verið alveg eitthvað síðan þá, en hvað var það sem vakti áhugann fyrir matreiðslunni?“
L: ,,Ég var nú bara beðin um að koma að vinna á þeim tíma.“
E: ,,Já, og hvaða blóm ert þú í dag?“
L: ,,Hvaða blóm? Það er spurning. Ég ætla að segja Páskalilja.“
E: ,,Já, en hérna, hvernig finnst þér matreiðslan, hefur þú ástríðu fyrir mat?“
L: ,,Já.“
E: ,,Jahá, en hefur þú einhver önnur áhugamál fyrir utan matreiðsluna?“
L: ,,Já já, alveg fullt af þeim, það má t.d. nefna að prjóna og sauma.“
E: ,,Já það er oftast svoleiðis að maður hafi önnur áhugamál. En okkur langar að spyrja þig núna hvað sé nú mottóið þitt í lífinu? Ertu með einhvern málshátt í huga t.d.?“
L: ,,Hmm.. ég er ekki viss. Einhver málsháttur? Kannski að það er bara ánægjan sem er auði betri.“
E: ,,Ert þú Ísfirðingur, og ef ekki hvaðan ertu þá?“
L: ,,Já, heyrðu, ég er nú bara Ísfirðingur.“
E: ,,Já já já, okkur langar nú að vita hvað sé uppáhalds maturinn þinn?“
L: ,,Það er allur matur góður að mínu mati.“
E: ,,Já, auðvitað, en spurning er nú hvort þú málir þig daglega eða hvernig er það?“
L: ,,Já ég mála mig nú, en ekki daglega myndi ég segja.“
E: ,,Já, en svona í endann, hvernig líst þér á skólann okkar? Er ekki bara gaman hérna?“
L: ,,Mér líst bara ljómandi vel á þennan skóla.“
E: ,,Já, þá er þetta bara komið, við viljum þakka þér fyrir viðtalið.“
L: ,,Já, takk fyrir.“










