Á talinu: Andrea Harðardóttir
Tvær stelpur úr hópi fréttablaða og fjölmiðla fóru í leiðangur til að taka viðtal við nokkra kennara skólans og byrjuðu á því að fara í heimsókn í myndlistarsmiðjuna á Gróskudögum. Þar tóku þær viðtal við Andreu Harðardóttur sagnfræðikennara skólans. Það viðtal var skriflegt.
Erla og Guðmunda: Hvernig þér finnst að kenna hérna í skólanum?“
Andrea: ,,Já, mér finnst skemmtilegt að kenna, en það getur stundum tekið á þolinmæðina.“
E: ,,Já það er svoleiðis sko, en hvar lærðir þú áður en þú komst í skólann, eins og í hvaða háskóla fórstu?“
A: ,,Ég lærði í Háskóla Íslands á sagnfræðideildinni.“
E: ,,Já, en svona aðeins út úr engu, hvaða blóm ert þú í dag?“
A: ,,Hvaða blóm? Hahaha, ég veit það nú ekki.. Æji hvað heitir þetta blóm.. man ekki. Segi bara Hrafnaklukka, það er hvítt.“
E: ,,Já það er náttúrulega svo kalt úti, haha, en hérna, ertu Ísfirðingur að uppruna?“
A: ,,Nei, ég er frá Kópavogi og er ættuð af Hornströndum og Patreksfirði.“
E: ,,Já já, gaman að vita af því, en hérna, tannburstaðir þú þig í morgun?“
A: ,,Já ég gerði það.“
E: ,,Já auðvitað, en hvað borðaðir þú í morgunmat?“
A: ,,Ég fékk mér lýsi, einn banana og eina hrökkbrauðsneið.“
E: ,,Já, en hérna, þegar þú hefur frítíma, hvað finnst þér skemmtilegast að gera?“
A: ,,Æj, það er svo margt, vera úti, lesa...“
E: ,,Já já já, en er það eitthvað að lokum sem þú vilt koma á framfæri?“
A: ,,Ég ætla bara að segja að vorið sé besti tíminn.“















