Á talinu: Claudia & Megan - Háskólasetur Vestfjarða
Lára Margrét Gísladóttir
Líf Indíana Sveinsdóttir
Við fórum í heimsókn í Háskólasetur Vestfjarða og fengum að kynnast aðeins starfseminni þar. Við Háskólasetur Vestfjarða er meðal annars boðið upp á fjarnám frá HÍ og HA í ýmsum greinum t.d. hjúkrunarfræði, kennaranámi og sálfræði. Einnig er stór hluti af starfseminni kennsla í haf- og strandsvæðastjórnun. Núna eru um 45 meistaranemar, t.d. þeir sem eru að læra haf- og strandsvæðastrjórnun og aðrir sem eru að skrifa mastersritgerðir. Það eru líka um 80 nemar í fjarnámi, þannig að samtals eru um það bil 125 nemendur í skólanum. Við tókum viðtal við tvo hressa nemendur skólans, þær Claudiu og Megan.
Hvernig finnst ykkur að vera á Ísafirði?
Claudia: Þetta er góður staður til að vera á og fólkið hér er mjög vingjarnlegt.
Megan: Það er líka margt að gera og nóg um að vera.
Hvað eru þið búnar að vera hérna lengi?
C: Ég er búin að vera hér síðan í ágúst
M: Ég er búin að vera síðan í september, eins og allir hinir krakkarnir sem eru að læra haf- og strandsvæðastjórnun.
Hvað eru þið að læra? C & M: við erum að læra haf- og strandsvæðastjórnun.
Af hverju ákváðuð þið að koma til Ísafjarðar?
M: Við vitum ekki. Þetta er einstakt verkefni og ekki boðið upp á það mörgum stöðum.
C: Staðurinn hefur einnig upp á mikið að bjóða, það er stutt í hafið og svo er hann líka mjög fallegur.
Hafið þið lært einhverja íslensku?
C: Smá. Við getum farið út í búð og keypt okkur í matinn á íslensku
M: Við getum líka spjallað smá við fólk t.d. í sundi. En það er auðveldara að lesa íslensku því þið talið stundum svo hratt.
Haldið þið að reynslan af því að dvelja hér eigi eftir að reynast ykkur vel?
C: Já, pottþétt.
M: Klárlega.
Að lokum, hvað finnst ykkur um veðrið?
M: Claudia er frá Guatemala þannig að henni finnst það mjög áhugavert.
C: já, maður fær allaveganna ekki leið á því. Það er alltaf að breytast.
Gaman er að geta þess að í hádeginu (milli 12:10 og 13:00) á föstudögum er alltaf vísindaport. Þá kemur alls konar fólk með áhugaverða fyrirlestra sem eru opnir öllum. Fyrirlestrarnir fara fram á kaffistofu Háskólasetursins.









