Hollustubrauð
Í dag bakaði ég eitt besta brauð sem ég hef á ævi minni smakkað! Í mínum óþolinmóða huga er það kostur að uppskriftin er bæði einföld og fljótleg. Brauðið inniheldur lyftiduft þannig að ekki er nauðsynlegt að láta degið hefast í hálfa öld, heldur getur maður skellt forminu í ofninn um leið og hráefnin hafa blandast. Þægilegt! Brauðið kallast Hollustubrauð og uppskriftin kemur frá leikskólanum Klettaborg.
Hollustubrauð
3.5 dl hveiti
3.5 dl haframjöl
1 dl hveitiklíð
1 msk sykur eða hrásykur
4 tsk lyftiduft
0.5 dl hörfræ
1/2 l létt AB mjólk eða súrmjólk
Sesamfræjum stráð ofan á. Bakað í ofni í við 180-200 gráður í ca. 45-50 mín.
Brauðið bragðaðist virkilega vel nýbakað með brie ost + klettasalati + svörtu ólífum. Kannski ekki það álegg sem flest börn kjósa, en ég veit þó um einn gourmet dreng norðan heiða sem myndi ekki fúlsa við slíku.










