Morgunkorn
Í langan tíma hef ég ætlað mér að búa til eigið múslí. Loksin lét ég verða að því og varð ekki svikin! Hér er uppskrift að morgunkorni eða múslí frá Regnboganum leikskóla. Morgunkorn
250 gr tröllahafrar
500 gr haframjöl
250 gr sólblómafræ
100 gr hveitiklíð
100 gr hörfræ
100 gr sesamfræ
100 gr kókosmjöl
1 dl olía
1 dl vatn
1/2 dl hlynsíróp Öllu þurrefni er blandað saman, sett í ofnskúffu og inn í ofn.
Vökvinn er hristur saman og dreift yfir þurrefnin.
Bakað í klukkustund við 180 gráður. Mjög mikilvægt er að hæra í öðru hvoru! Gott er að bæta við rúsínum, söxuðum döðlum, gráfíkjum, gojiberjum, eplum (passa að þurrka þau vel eða nota þurrkuð) og/ eða apríkósum. Svo gat ég ekki setið á mér og bætti við örlitlum kanil. Ég hlakka svo sannarlega til að fá mér heimagert múslí með AB mjólkinni í fyrramálið!











