Ostur Mining Earn Free Bitcoin Signup Bonus 100 USD | Earn Daily 2.35% T...
seen from China
seen from United States

seen from Philippines

seen from Türkiye
seen from China

seen from Türkiye

seen from Türkiye
seen from China
seen from China
seen from China
seen from China
seen from Russia

seen from United Kingdom

seen from United Kingdom

seen from Colombia
seen from Yemen

seen from Türkiye

seen from Germany

seen from Italy
seen from Italy
Ostur Mining Earn Free Bitcoin Signup Bonus 100 USD | Earn Daily 2.35% T...
Pizza-fiskur
Sæl öll
Langt síðan ég hef látið af mér kveða hér. Það er svona að ljúka námi, flytja á milli landshluta og hefja störf á nýjum stað, það tekur allt sinn tíma. En hér kemur loksins ný uppáhalds uppskrift, að þessu sinni frá leikskólanum Regnboganum í Reykjavík.
Pizza-fiskur
Ýsa eða þorskur í bitum
2 hvítlauksrif
1 rauð papríka
1 gul papríka
1 græn papríka
2 msk basilika eða steinselja
1 dós saxaðir niðursoðnir tómatar eða nýjir vel þroskaðir tómatar
Aðferð
Allt grænmetið ásamt tómötunum er maukað saman í matvinnsluvél eða fín saxað og hrært saman.
Fiskurinn lagður í eldfast mót, grænmetismaukinu hellt yfir, að lokum er osti dreift yfir.
Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 15 - 20 mín.
Hér er hægt að breyta magni grænmetis sem og tegundum allt eftir því hvað er til hverju sinni.
Athugasemdir
Ég átti smávegis af parmesan osti sem ég bætti við uppskriftina.
Það er mjög sniðugt að mauka allskyns grænmeti fyrir börn sem aldrei vilja borða papríku, tómata, blómkál og fleira. Það er merkilegt hvað þeim finnst grænmetið gott þegar það er orðið að sósu! Svo má smám saman fara að gróf saxa það meira þegar þau hafa vanist bragðinu.
Njótið!