Prófaðu Kush ef CBD-ið smellir ekki fyrir þig. Skilaðu því í söluhæfu ástandi innan 14 daga og fáðu peningana þína til baka. Engin áhætta!
seen from United States

seen from United States
seen from Germany

seen from Singapore

seen from United States
seen from United States

seen from Malaysia

seen from Singapore

seen from United States
seen from United States
seen from United States
seen from Canada
seen from Spain
seen from Singapore

seen from United States
seen from United States

seen from United States

seen from United States
seen from China
seen from United States
Prófaðu Kush ef CBD-ið smellir ekki fyrir þig. Skilaðu því í söluhæfu ástandi innan 14 daga og fáðu peningana þína til baka. Engin áhætta!
Kush er svarið ef CBD-ið virkar ekki. Skilaðu því innan 14 daga í söluhæfu ástandi og fáðu peningana þína til baka. Engin áhætta, bara gæði!
Í útlöndum með snjallsíma: Það margborgar sig að gera þetta...
Í útlöndum með snjallsíma: Það margborgar sig að gera þetta…
Við Guðný Hrönn glaðar í helgarferð til Bristol og Bath á dögunum. Þarna var ég ekki með frelsi og sá mikið eftir því. Segi ykkur meira frá Bristol seinna.
Eftir að snjallsímarnir góðu (og vondu) komu til sögunnar höfum við öll orðið meira eða minna háð þeim.
Sjálf er ég aðallega háð internetinu og hef verið mjög lengi. Mér finnst eins og það vanti í mig gangráðinn ef ég get ekki verið sítengd…
View On WordPress
10 aðferðir til að eignast aldrei peninga og verða aldrei rík
10 aðferðir til að eignast aldrei peninga og verða aldrei rík
Þessi hefur eflaust lagt fyrir frá því hún var ung og hún er ekki með yfirdrátt.
Kannt þú að fara með peninga? Það er því miður ekki mjög líklegt, við kunnum það fæst enda flestir sem hugsa ekki marga leiki fram í tímann. Þá sérstaklega hér á landi.
Eftirfarandi eru 10 skotheld ráð til að verða aldrei múruð og loðin um lófana.
1. Gerðu alltaf ráð fyrir að í framtíðinni verði tekjur þínar hærri en…
View On WordPress
Hvernig verða kreppur til? Rakst á flott myndband sem er framleitt af Bridgewater. Bridgewater er einn af stærstu vogunarsjóðum heims, með um 120 milljarða dollar í umsýslu.
Tíu sparnaðarráð
Það hefur ekki farið framhjá neinum að matvöruverð hefur hækkað upp úr öllu valdi á undanförnum árum. Stundum líður mér eins og peningarnir hreinlega fljúgi úr höndunum á mér um leið og ég stíg fæti inn í búð. Það er varla að maður reki inn litlu tá fyrir minna en 5000 krónur! Svo sest maður út í bíl, með EINN haldapoka af ósköp venjulegum mat og veltir því fyrir sér í hvað peningurinn hafi eiginlega farið. En hvað er til ráða, hvernig er hægt að láta peningana endast ööörlítið lengur? Ég ákvað að taka saman nokkur sparnaðarráð héðan og þaðan, meðal annars úr leikskóla-handbókinni góðu og deila þeim hér.
Tíu sparnaðarráð: Eldum matinn okkar sjálf Heimagerður matur er oftast ódýrari og hollari en tilbúinn matur. Oft miklum við fyrir okkur að elda heima. Eldamennska þarf ekki að vera flókin og tímafrek.
Búum til matseðla Gott er að búa til matseðla fram tímann, til dæmis fyrir vikuna. Veljum réttina þannig að hægt sé að nýta sama hráefni tvo daga í röð. Þannig skemmist maturinn síður. Það sparar okkur líka tíma og orku að vera búin að versla í matinn fyrir fram. Ef plön breytast þá verður rétturinn á borðum degi síðar.
Aðlögum matseðla að tilboðum og árstíðum Verð á matvörum stjórnast meðal annars af framboði og eftirspurn. Fylgjumst með!
Eldum stundum baunarétti í stað kjötrétta Við þurfum ekki að borða kjöt daglega. Baunir eru ágætis prótein uppspretta auk þess eru þær ódýrar og seðjandi.
Kaupum stundum frosið grænmeti og ávexti Frosið grænmeti og ávextir er oftast mikið ódýrara en ferskt. Auk þess hafa ávextir og grænmeti verið fryst á heppilegu þroskaskeiði. Þannig þurfum við ekki að bíða í fimm daga eftir að ástaraldin verði nógu þroskað í boostið okkar. (Munum að sjóða frosin ber!)
Kaupum rétt magn af mat Lærum af reynslunni og verslum hæfilegt magn af mat.
Borðum hafragraut eða heimagert múslí í morgunmat Það er svo mikið ódýrara, hollara og betra en tilbúna morgunkornið.
Förum EKKI svöng í búðina Annars endum við með fullan poka af mat sem ætluðum ekki að kaupa. Öll skynsemi víkur þegar hungrið segir til sín. Látum ekki garnagaulið stjórna innkaupunum.
Látum ekki glepjast Staðsetning matvöru í stórmörkuðum er sjaldnast tilviljun. Látum ekki markaðsfræðina plata okkur í að kaupa rándýra matvöru, í fallegum umbúðum af besta stað hillunnar.
Förum yfir kvittanir Leiðinlegt, en það getur borgað sig! Verum meðvitaðir neytendur!