Tíu sparnaðarráð
Það hefur ekki farið framhjá neinum að matvöruverð hefur hækkað upp úr öllu valdi á undanförnum árum. Stundum líður mér eins og peningarnir hreinlega fljúgi úr höndunum á mér um leið og ég stíg fæti inn í búð. Það er varla að maður reki inn litlu tá fyrir minna en 5000 krónur! Svo sest maður út í bíl, með EINN haldapoka af ósköp venjulegum mat og veltir því fyrir sér í hvað peningurinn hafi eiginlega farið. En hvað er til ráða, hvernig er hægt að láta peningana endast ööörlítið lengur? Ég ákvað að taka saman nokkur sparnaðarráð héðan og þaðan, meðal annars úr leikskóla-handbókinni góðu og deila þeim hér.
Tíu sparnaðarráð: Eldum matinn okkar sjálf Heimagerður matur er oftast ódýrari og hollari en tilbúinn matur. Oft miklum við fyrir okkur að elda heima. Eldamennska þarf ekki að vera flókin og tímafrek.
Búum til matseðla Gott er að búa til matseðla fram tímann, til dæmis fyrir vikuna. Veljum réttina þannig að hægt sé að nýta sama hráefni tvo daga í röð. Þannig skemmist maturinn síður. Það sparar okkur líka tíma og orku að vera búin að versla í matinn fyrir fram. Ef plön breytast þá verður rétturinn á borðum degi síðar.
Aðlögum matseðla að tilboðum og árstíðum Verð á matvörum stjórnast meðal annars af framboði og eftirspurn. Fylgjumst með!
Eldum stundum baunarétti í stað kjötrétta Við þurfum ekki að borða kjöt daglega. Baunir eru ágætis prótein uppspretta auk þess eru þær ódýrar og seðjandi.
Kaupum stundum frosið grænmeti og ávexti Frosið grænmeti og ávextir er oftast mikið ódýrara en ferskt. Auk þess hafa ávextir og grænmeti verið fryst á heppilegu þroskaskeiði. Þannig þurfum við ekki að bíða í fimm daga eftir að ástaraldin verði nógu þroskað í boostið okkar. (Munum að sjóða frosin ber!)
Kaupum rétt magn af mat Lærum af reynslunni og verslum hæfilegt magn af mat.
Borðum hafragraut eða heimagert múslí í morgunmat Það er svo mikið ódýrara, hollara og betra en tilbúna morgunkornið.
Förum EKKI svöng í búðina Annars endum við með fullan poka af mat sem ætluðum ekki að kaupa. Öll skynsemi víkur þegar hungrið segir til sín. Látum ekki garnagaulið stjórna innkaupunum.
Látum ekki glepjast Staðsetning matvöru í stórmörkuðum er sjaldnast tilviljun. Látum ekki markaðsfræðina plata okkur í að kaupa rándýra matvöru, í fallegum umbúðum af besta stað hillunnar.
Förum yfir kvittanir Leiðinlegt, en það getur borgað sig! Verum meðvitaðir neytendur!








