Fimmtudagssprettir
Feitir fimmtudagssprettir með Afrekshópnum. Tókst hið ómögulega, að draga konuna með á æfingu og við tókum upphitun í samfloti með Palla, Þórdísi, Önnu Láru og Steinunni Ástu. Blautt og vel vindasöm upphitun en endaði svo að lokum aftur uppi í frjálsíþróttahöll þar sem halda skyldi í 6x400-200 spretti...
En viti menn, þar komum við að 'luktum' dyrum því að í höllinni var eitthvað mót sem hafði algjörlega gleymst að segja okkur af. Því var ekkert annað að gera en að taka sprettina úti og Hvíti Kenýa breytti þeim snarlega í 6-8x400 metra spretti því að vindurinn var töluverður fyrir utan rigninguna. En við erum auðvitað engir aumingjar þannig að við drifum okkur bara í verkið!
Fórum fyrstu þrjá á móti vindindum og svo seinni þrjá með, kom betur út þannig en fyrir vikið voru tímarnir eilítið 'brenglaðir'. Töluvert hægari úteftir en urðu svo styttri á leiðinni til baka, sá síðasti hraðastur. Gekk vel, púlsinn á fínu róli í sprettunum og náði að halda góðu tempó. Konan var líka ánægð með þetta og er alveg æst í að mæta fljótlega aftur... :D
Dagsetning: 17.01.2012@18:15 Meðalhraði: 4:37 mín/km (hraðasti sprettur) Heildartími: 58 mínútur (ish) Vegalengd: 8.200 metrar (ish) Meðalpúls: 170 slög á mínútu (í sprettunum)










