Þessi grein segir stuttlega frá niðurstöðum litillar rannsóknar þar sem könnuð var notkun blogs með hópi nema sem hafa lokið batchelor gráðu.
Fylgst var með hópnum yfir eina önn þar sem kennari setti upp blogg sem nemendur gátu notað til að birta eigin skrif, ræða hópverkefni og jafningjagagnrýni. Kennari nýtti einnig bloggið til að setja inn síður, verkefni og þess háttar fyrir nemendur og skrifaði einnig athugasemdir við blogg þeirra.
Þessi rannsókn sýndi að blogg getur verið áhrifarík tækni til menntunar og blogg gagnleg leið í námi með því að gera nemum kleift að lesa blogg annarra nemenda, fá athugasemdir við ófullgerðum verkefnum og sjá verkefni annarra. Það sem hvatti nemendur til að blogga var Það var hvatning fyrir nemendur að blogga því að þeir þurftu að kynna niðurstöður sínar á verkefnum á blogginu, þeir voru metnir út frá blogginu og reglulega var bloggað af kennara námskeiðsins.
Í gegnum blogg getur kennari búið til umhverfi þar sem nemendur telja sig vera mikilvægur þáttur af námshópnum og að tekið er eftir þörfum þeirra og skoðunum og tekist á við þær.














