Síðustu dagar / vikur hafa verið viðburða ríkar.
Dæmi um það sem ég hef haft fyrir stafni síðustu vikur eru fjallgöngur, sundpróf, hjólapróf, kanó, klettaklifur, friðarráðstefna, hef prufað mörg EAC (valfög eftir skóla): leiklist, teikning, fjallgönguhópur, Haugland Origami, Mottak (Mottak er stofnun sem tekur á móti flóttamönnnum og ólöglegum innflytjendum í Noregi og leyfa þeim að búa þar, þar til þeir fá landvistarleyfi - við, sem viljum förum þarna aðra hverja viku sem sjálfboðaliðar til að tala við íbúana og sýna þeim stuðning), photography, gas (gender and sexulity) ofl. - Næstu daga mun ég svo prufa fleiri völ, það eru endalaust í boði hérna og ef það er ekki í boði er hægt að sækja um að fá það metið sem val.
Skólinn er alla virka daga frá 8-14.
Fögin sem ég er búin að velja mér núna eru (mun mögulega breyta einhverjum af þeim):
Visual art (Higher level) - (ísl. myndlist)
Global politicks (Higher level) - (ísl. alþjóðleg stjórnmál)
English Language and Literature (Higher level) - (ísl. enska tungumálið og bókmenntir)
Math studies (Standard level) - (ísl. stærðfræði)
Environmental systems and societies (Standard level) - (ísl. Umhverfiskerfi og samfélög)
World Literature - self thought Icelandic (Standard level) - (ísl. sjálfkennd íslenska)
Ég er með 4 öðrum stelpum í herbergi, Nati frá Costa Rica, Pisey frá Kolómbíu, Solveig frá Noregi og Haja frá Siera leon.
Skólinn, UWC RCN (United World Collage Red Cross Nordic) er staðsettur rétt fyrir utan litla þorpið Flekke í norður Noregi, um það bil 4 tíma akstur frá Bergen/Björgvin.
UWC RCN er alþjóðlegur menntaskóli, í skólanum eru um það bil 200 nemendur frá 95 þjóðernum.
UWC skólarnir eru mjög virtir um allan heim og margir sem útskrifast með International diploma gráðu fá námstyrk í háskólum um allan heim.
Allt námið fer fram á ensku.
Hægt er að lesa meira um skólann hérna: http://uwcrcn.no/
Ég mun setja meira hérna inn þegar ég hef tíma.
Getið líka fylgst með með á instagram - ég pósta mikið af myndum þar inn:
https://instagram.com/magneagna
- Magnea Gná Jóhannsdóttir