seen from Maldives

seen from United States

seen from United States
seen from India

seen from United States
seen from Ukraine
seen from China
seen from Australia

seen from Maldives
seen from Malaysia

seen from United States

seen from Romania

seen from United States
seen from Netherlands
seen from Romania

seen from Sweden
seen from United States
seen from Russia
seen from United States

seen from Sweden
Meira svona...... #hagkaup #shopping #reykjavik #dragsugur #dragqueen #iceland #starina (at Skeifan)
Skeifan #reykjavik #iceland #hagkaup #skeifan #night #lights #sign #dark #dank (at Reykjavík, Iceland)
Ó hvað ég elska næstum tilbúnar og einfaldar lausnir. Þetta þarf ekki alltaf að vera flókið.
Í Kosti er hægt að fá mikið úrval af Betty Crocker vörum sem fást ekki annars staðar og sömuleiðis svipaðar vörur eins og kökumixið frá Pillsbury sem ég notaði í þessar kökur.
Ég er nýkominn frá New York og er bandarísk eldamennska og hefðir mér ofarlega í huga. Fylltar muffins eða bollakökur, fylltir kleinuhringir, fylltir hamborgarar, fyllt, fyllt, fyllt. Þeir troða alls konar gumsi inn í alls konar.
Þetta kökumix frá Pillbury er virkilega gott, dísætt og með ríku vanillubragði, ég bætti reyndar við vanilludropum til að ýkja upp bragðið, annars er þetta frekar basic:
1 pakki Pillsbury Moist Supreme Classic White kökumix
3 egg
2 dl olía
1 dl vatn
Vanilludropar
1 dós Betty Crocker Zesty Lemon Icing krem (sem er btw geggjað)
1 dós vanillucustard
Kökuskraut
Þetta gengur einfaldlega út á að blanda kökumixinu við eggin, olíuna og vatnið, bara alveg eins og kemur fram á pakkanum. Svo í staðinn fyrir að setja deigið í stórt form þá set ég það í muffins form, fylli það 2/3 svo að toppurinn flæði aðeins yfir. Bakað í 20 mínútur við 175°C.
Toppurinn er svo skorinn af og u.þ.b. ein matskeið af köku tekin úr kökunni og vanillucustard sett í staðinn. Ambrosia Devon Custard sem ég notaði í þessa uppskrift keypti ég í Bretlandi en svipaðar vörur fást í Kosti og Hagkaup, einhverjum kann að finnast þetta ógirnilegt svona í dós, en ég get staðfest að það er auðveldlega hægt að borða þetta beint upp úr dósinni…svo er líka hægt að gera það frá grunni…eeeeen ég vildi hafa þetta fljótlegt og auðvelt. Ég hef líka feikað mig í gegnum vanillucustard með Royal vanillubúðing og rjóma.
Smá Zesty Lemon krem er sett á innanverðinn toppinn og hann settur aftur á, til að halda honum á sínum stað. Svo er kreminu smurt ríflega yfir og kökuskraut á toppinn.
Tilvalið í barnaafmælið, matarboðið eða föstudagskaffið, Stormsveitar pinnana fékk ég á Aliexpress, keypti reyndar haug af alls konar Star Wars dóti í eldhúsið þar. Ég elska að poppa upp venjulega rétti með svona sniðugheitum, en það er nú bara ég :)
Ég bar þetta svo fram með ís og saltkaramellusósu úr Ísbúðinni Laugalæk, sem er alveg frábær.
Hér er þessu svo pakkað snyrtilega inn í Snapchat-form:
Stormsveitarkökur með sítrónukremi Ó hvað ég elska næstum tilbúnar og einfaldar lausnir. Þetta þarf ekki alltaf að vera flókið.
Dyggur lesandi sendi mér Snapchat um daginn þar sem viðkomandi var staddur í boði að snæða maísbaunir í tempuradeigi, þetta fangaði athygli mína. Þetta er svo fullkomnlega steikt blanda, hverjum dettur svona í hug?? Ég ákvað að sjálfsögðu að prófa, tempura er mikið notað í asískri matargerð, mjög mikið í sushi. Því fannst mér tilvalið að bjóða uppá maísbaunir í tempura samhliða nautafile í teryiaki marineringu.
Garlic teryiaki marineringin frá Stonewall er frábær að mínu mati, hún fæst í Hagkaup, Kjöt og fisk og fleiri stöðum, ég lagði nautafile-ið í marineringuna ásamt haug af sesam-fræjum, stakk aðeins í kjötið með mjög beittum hníf til að opna það og lét liggja þannig í 2 klst. Steikti svo á pönnu með smjöri og setti í eldfast mót ásamt öllu pönnugumsinu og bakaði við 150°C þar til kjarnhitinn fór í 52°C, þá lét ég það hvíla í 20 mínútur og skar svo í þunnar sneiðar.
Tempura deigblönduna keypti ég í Vietnam market á Suðurlandsbraut, sú búð er algjört ævintýri, ég elska að týnast í sósuhillunum eða skoða undarlegu ávextina þeirra, það er alltaf hægt að finna eitthvað spennandi hjá þeim. Ég hrærði duftið útí vatn og svo fóru nokkrar baunir saman í einu í deigið og ofan í sjóðheita sólblómaolíu þar til deigið var orðið stökkt. Þá saltaði ég og setti mulið chilli yfir. Ofan á baunirnar setti ég svo Banana chilli sósu sem ég fékk á sama stað.
Þetta bar ég svo fram með sætum kartöflufrönskum og chilli bernaise sósu sem heitir bara Benni#2 og fæst í Hagkaup, hræðilegt nafn en ljómandi sósa.
Það sem þarf í tempuramaísbaunir:
Tempura-duft
1 dós maísbaunir
Salt
Þurrkað chilli
Það sem þarf í teryiaki nautafile:
Hálf flaska Garlic Teryiaki Marinade frá Stonewall
450 gr nautafile
Eitt handfylli af sesam
Smá smjör
Salt og pipar
Maísbaunir í tempuradeigi Dyggur lesandi sendi mér Snapchat um daginn þar sem viðkomandi var staddur í boði að snæða maísbaunir í tempuradeigi, þetta fangaði athygli mína.
Ég er voða hrifinn af Jamie Oliver vörunum og hef skrifað töluvert um þær. Pastað frá honum er yfirleitt aðeins grófara en gengur og gerist þ.e.a.s. áferðin er önnur en á venjulegu pasta og drekkur þar af leiðandi í sig meiri sósu eða bragð. Vörurnar fást í Krónunni og Hagkaup líka að ég held, annars er mér alveg sama hvaðan gott kemur.
Pestóin frá honum eru líka mjög góð og ég er sérstaklega hrifinn af valhnetu og chilli pestóinu.
Í þetta einfalda pasta notaði ég:
250gr beikon
Lime bbq olíu
1 rauðlauk
6 ferskar döðlur
1 dós valhnetu og chillipestó
hálfur poki penne pasta
Beikonið smurði ég með Lime bbq olíunni og bakaði við 200°C í 25 mínútur (þar til það var orðið vel stökkt) og þerraði, klippti svo niður í bita.
Sauð pastað í vatni með salti og olíu og hellti svo af. Setti svo pestóið saman við, beikonið og gróft saxaðar döðlur og rauðlauk. Smá parmesan yfir og maður er í himnaríki.
Penne pasta með beikoni, valhnetupestó og döðlum Ég er voða hrifinn af Jamie Oliver vörunum og hef skrifað töluvert um þær. Pastað frá honum er yfirleitt aðeins grófara en gengur og gerist þ.e.a.s.
Ég bý í lítilli krúttlegri risíbúð á Leifsgötu, íbúðin er frábær en væri fullkomin ef það væru á henni svalir. Það er ótrúlegur munur að vera með svalir, ég gæti þá verið með grillið mitt fína á svölunum, drukkið morgunkaffi í sólinni og daðrað við alls konar matarstef án þess að þurfa að hlaupa upp og niður fjórar hæðar, daðurmaðurinn sem ég er.
Ég bý samt svo vel að eiga ferðagasgrill og ég fékk rosa kreiving í grillað grænmeti um daginn, líklegast eftir allt grillaða grænmetið sem ég fékk á Sikiley, þar er mikið verið að vinna með papriku, eggaldin, kúrbít (zucchini eða courgettur) og ýmislegt fleira sem er svo lagt í olíu eða edik og notað í antipasti rétti.
Ég setti ferðagrillið ofan í vaskinn og opnaði alla glugga og grillaði mér kúrbít og papriku eins og engin væri morgundagurinn.
Kúrbítinn penslaði ég með ólívuolíu og kryddaði með salti og kryddblöndu sem ég keypti á markaði úti en líklegast samanstendur hún, af lyktinni að dæma, af þurrkuðu basil, thyme og fleira. Paprikuna penslaði ég með olíu, setti salt og reykt paprikuduft. Grillaði á báðum hliðum þar til rendurnar fallegu létu sjá sig.
Þetta bar ég síðan fram með lárperu (avocado) og frábærum balsamicgljáa frá Modena sem heitir Elsa og fæst í Hagkaup og Kjöt og fisk ásamt ristuðu brauði með smjöri.
Illað grillað grænmeti Ég bý í lítilli krúttlegri risíbúð á Leifsgötu, íbúðin er frábær en væri fullkomin ef það væru á henni svalir.
NEON REFLECTiON