Downtown Reykjavík, Iceland April 12 2026

seen from Israel
seen from Australia
seen from Netherlands
seen from United States

seen from Singapore
seen from Slovenia
seen from United States
seen from United States
seen from United States

seen from United States
seen from United States
seen from Germany

seen from France

seen from South Africa
seen from China

seen from United Kingdom
seen from United States
seen from Russia
seen from China

seen from Germany
Downtown Reykjavík, Iceland April 12 2026
Arts&Crafts.
15. Mig hefur alltaf langað til að stofna kaffihús, er ég frumkvöðull?
Þegar spurning af þessu tagi poppar upp, er mikilvægt að átta sig á þeim atriðum sem skipta máli í þessu samhengi. Þessi spurning gæti í raun átt við um mjög marga einstaklinga og þeir gætu verið með í maganum marga aðra hluti en að stofna kaffihús. Ég leyfi mér að nota kaffihúsið sem gott dæmi um þau atriði sem gætu skipt máli. Ég vil byrja á að spyrja þig, kæri lesandi EF þú værir búin að lúra með kaffihúsaeigandann í maganum um langa hríð, hvað væri í raun það sem skipti í máli fyrir þig? Það sem ég á við er hvort ástæðan að baki þess að þú vilt stofna kaffihús snúi að því að þú sért svo góð/ur í bakstri og viljir koma kökunum á markað, eða hvort þú teljir að margt sé hægt að bæta í því framboði af kaffihúsum sem er til staðar í dag? Getur verið að þú hafir jafnvel séð kaffihús af öðru tagi þegar þú varst að ferðast erlendis og þér finnist þú endilega þurfa að setja slíkt á stofn hérlendis? Getur verið að þú hafir í raun mestan áhuga á að hafa kaffihús því það í raun styðji við bakið á einhverju öðru sem þú ert með í huga svo sem bókabúð eða tónlistasölu eða internet kaffi eða jafnvel kaffi/veitingastað/áfengissölu/skemmtistað? Ef þú ert svona góður kokkur og þarft að koma kökunum á markað, þá eru til fleiri leiðir en að stofna kaffihús. Þú gætir byrjað að baka heima og sent í verslanir. Þú gætir haft heimasíðu og selt eftir pöntun. Þú gætir skilgreint kökurnar sem afmæliskökur og auglýst þig sem afmæliskökulausnina. Þú gætir litið á þetta sem heildarlausn og sagt að öll afmæli væri í þínum höndum og að þú sæir um allt nema húsið. Þú gætir jafnvel samið við veitingahús um að vera með eitt horn á veitingahúsinu þar sem þú værir með þínar kökur í boði...ja eða þá í horninu á bókabúðinni. Ef þú hefur séð kaffihús af öðru tagi , þá gætir þú stílfært það í stað þess að nota hugmyndina óbreytta. Þú gætir selt öðru kaffihúsi eða fyrirtæki hugmyndina að útfærslunni. Þú gætir jafnvel prófað að breyta hugmyndinni þannig að ef t.d. hugmyndin snýr að því að bjóða upp á margar tegundir af te-i þá gætir þú útbúið kaffihús sem í raun er spa te hús þar sem róleg tónlist er og koddar í stað stóla og ilmkerti í lofti. Ef þú ætlar þér að nota erlenda keðju......þá þarftu að vera reiðubúin að borga verð fyrir að fá að nota brandið. Ef þú ætlar að í raun að selja tónlist. Getur þú gert það með öðrum hætti en að selja kaffi með? Með þessu er ég í raun að sýna fram á þá mörgu valmöguleika sem snýr að því að opna nýja rekstur. Nýsköpun er orðið og nýsköpunar er þörf ef þú ætlar þér að opna eitthvað nýtt. Ef þú gerir það ekki, þá ertu að gera baráttuna erfiðari en þarf í raun því þá verður þú eingöngu dæmd/ur af verði og gæðum í stað þess að vera bara öðruvísi og bjóða upp á lausn sem þú fannst út að var mögulegast þörf fyrir.
Hafðu samband við okkur í V6 þegar þig langar til að stíga skrefið og við getum hjálpað þér að finna út úr því hvernig útfærsla af fyrirtæki er best fyrir akkúrat þig ;)