Mexico súpa
Brumhnappar eru farnir að myndast á trjám, nágranninn er farinn að grilla, ærsl í krökkum berast inn um glugga og Lóan er komin. Þetta getur aðeins þýtt eitt - vorið er komið! Tjah það er að minnsta kosti komið vor í hjörtun, ekki satt?
Í dag eldaði ég súpu eftir uppskrift frá Guðrúnu, matráði á leikskólanum Sunnuhvoli. En Guðrún sá uppskriftina í blaði undir yfirskriftinni súpan sem lengir lífið, frá matráði Rimaskóla. Greinilega góð súpa hér á ferð!
Mexico súpan góða
1 laukur
2 hvítlauksrif, marin
olía
1 dós niðursoðnir tómatar, maukaðir
1 msk kjúklingakraftur
1 msk nautakraftur
1/2 msk rapunzel grænmetiskraftur
1/2 l tómatsafi
1 1/2 tsk kóríander
1/2 tsk chiliduft
1/2 tsk cayenne pipar
1 pk. úrbeinuð kjúklingalæri, brytjuð aðeins smærra heldur en þau eru í pakkanum
1/2 pk. gulrætur, brytjaðar
1/2 l vatn
Aðferð
Mýkjið laukinn í olíu. Bætið hvítlauknum við, hann má ekki brenna.
Tómatsafanum, gulrótunum, kryddinu og maukuðu tómötunum hellt útí ásamt vatni.
Soðið í smá stund til að mýkja gulræturnar.
Að lokum er kjúklingnum bætt við og hann látinn sjóða í 15-20 mín.
Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, muldum tortilla flögum og rifnum osti.
Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir
Ég gleymdi að nota kraft, en það kom ekki að sökum því súpan bragðaðist mjög vel.
Það er svo mikill vor-fílingur í mér að ég skipti út tortilla flögunum og rifna ostinum fyrir ferskan kóríander. Mjög gott!












