Meistaramánuður 2013 - Markmið
Meistaramánuður 2012 gekk bara nokkuð vel - var kannski aðeins of metnaðarfullur og setti mér örlítið of mörg/háleit markmið ;) Ætla að taka þátt aftur í ár og hafa markmiðin aðeins einfaldari.
Það sem ég ætla að stefna að núna í október 2013:
Líkamsrækt a.m.k. tvisvar í viku (badminton, lyfta lóðum, hot yoga...)
Útivist a.m.k. einu sinni í viku (fjallganga, út að hlaupa/ganga...)
Koma út a.m.k. einni bloggfærslu á TM Software blogginu
Koma út a.m.k. einni bloggfærslu á Valoro Kreo
Mig langar að hreyfa mig úti reglulega (ferskt loft og allt það) þannig að ég ætla að fækka líkamsræktar-markmiðinu frá því í fyrra um einn til að hafa frekar tækifæri til að fara út og hreyfa mig.
Að mæta tímanlega í vinnuna var svona aðal markmiðið mitt í fyrra og gekk það bara mjög vel. Ég tók samt eftir smá stressi/álagi í kringum það að þjóta út á morgnanna til að ná að vera mættur fyrir kl. 9 - ég var frekar tense þennan mánuð (sem hentar mér ekki alveg). Þannig að ég ætla að gefa mér smá sveigjanleika í ár, vera mættur í síðasta lagi 9:30.
Í fyrra var ég að nota Lift app-ið og var mjög duglegur að nota tannþráð. Þannig að mér fannst ég ekki þurfa að setja það sem markmið fyrir Meistaramánuð 2012. En núna er ég ekki búinn að vera alveg eins duglegur og ætla að hafa það sem markmið í ár.
Annað sem verður í gangi í október en mér finnst ég ekki endilega þurfa að setja það sem markmið (það mun pottþétt gerast): Ég mun halda fyrirlestur í Hörpu 10. október (svipað og í fyrra, á Veflausnadögum TM Software) og svo verð ég gestafyrirlesari á frumkvöðlanámskeiði í HR.
Spennandi mánuður framundan :)