Jæja þá! Núna eru flutningar yfirstaðnir. Hinsvegar er ekkert net komið í íbúðina svo ég hef bara gleymt að skrifa þegar ég er upp í skóla.
Hér eru upprunalegu markmiðin mín:
Ekkert nammi - so far hef ég ekki borðað neitt nammi, en vá hvað mig langar!
Ekkert gos - er að standa mig vel hér, langar samt alltaf!
Ekkert áfengi - gaf þessu breik á síðasta laugardag og fékk mér hvítvín, er samt ekki með neitt samviskubit yfir því.
Reyna að sleppa hvítu hveiti - borðaði fyrstu venjulegu brauðsneiðina í gær, annars hefur þetta gengið ágætlega.
Forðast sykur - hef valið vörur með hrásykri í staðin, og hef verið að nota hrásykur og agave sýróp í staðinn í bakstur (heppnast misvel)
Forðast unnar matvörur (Skinka, pepperoni, pylsur, osfrv.) - hef náð að sleppa þessu alveg..
Borða meira grænmeti - borða mun meira kál t.d. og almennt á góðu róli
Borða fleiri ávexti - tjekk, easy
Hreyfa sig 4-5x í viku - ekki nógu gott. Keypti kort í Reebok stöðinni, fyrsti Hot yoga tíminn er á laugardaginn, hlakka mikið til.
Taka hreinsikúr - stefni á næstu viku.
Sofa í 8 tíma á sólarhring - hef allavegana alltaf náð 8 tímum :)
Klára bókina sem ég er búin að vera endalaust með! - þetta mjakast áfram
Skipuleggja lærdóm vel fyrir masters-ritgerð. - skipulagning komin af stað, og önnur verkefni farin í gang.
Skrifa á þessa síðu 3x í viku - klikkaði sl viku.
Allt í allt er ég nokkuð ánægð með mig, þrátt fyrir að vera ekki að standast öll markmiðin.. Ég hlakka samt alveg ótrúelga til þegar þetta er búið.
Mér finnst samt æðislegt að hafa gert þetta, og ég ætla að reyna að hafa sem langtímamarkmið að gæta hófs í nammiáti (takmarka það við helgar) sem og gosdrykkju,þ.e. drekka ekki gos á virkum dögum. Svo líður mér nú ágætlega af því að minnka svona mikið brauðát, ætli ég reyni ekki að halda því áfram :D